Novo hættir að vera Nordisk Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 10:43 Eldra vörumerki Novo. Nautið Apis mun héðan í frá snúa til hægri í vörumerki danska lyfjarisans. Vísir/EPA Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk ætlar að fríska upp á ímynd sína með nýju nafni og vörumerki og gengur héðan í frá aðeins undir nafninu Novo. Þá ætlar fyrirtækið, sem hefur orðið undir í samkeppni að undanförnu, að kynna nýja viðskiptaáætlun á næstu dögum.
Novo komst í álnir með þyngdarstjórnunarlyfjunum Ozempic og Wegovy. Fyrirtækið, sem er um hundrað ára gamalt, hefur þó ekki náð að fylgja eftir velgengni lyfjanna og glímir við vaxandi samkeppni á markaði með þyngdarstjórnunarlyf. Fyrir utan að stytta nafn fyrirtækisins verða breytingar gerðar á vörumerki þess, egypska guðinum Apis í nautslíki sem er tákn frjósemi og styrks. Nautið, sem hefur verið í vörumerki Novo frá upphafi, verður þar áfram en snýr nú til hægri í stað vinstri. Danska ríkisútvarpið segir að Novo ætli að kynna nýja markaðssókn sína á viðburði í London í næstu viku. Novo sagði upp þúsundum starfsmanna sinna, þar af um fimm þúsund í Danmörku, fyrir ári. Fyrirtækið var um tíma það verðmætasta í Evrópu en hefur glímt við lækkandi tekjur. Þá rak það forstjóra sinn til átta ára í maí í fyrra.
Þyngdarstjórnunarlyf Danmörk Lyf Tengdar fréttir Gengi Novo Nordisk steypist niður Hlutabréfaverð í danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk hefur steypst um hátt í tuttugu prósent um leið og væntingar af lyfjasölu í Bandaríkjunum hafa dregist saman. Í miðju blóðbaðinu tilkynnti fyrirtækið að það hafi valið sér nýjan forstjóra. 29. júlí 2025 11:57 Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk, eitt verðmætasta fyrirtæki Evrópu, tilkynnti í dag að það hefði rekið forstjóra sinn í skugga vaxandi samkeppni. Í tíð forstjórans hefur hagnaður fyrirtækisins nærri þrefaldast þökk sé þyngdarstjórnunar- og sykursýkislyfja þess. 16. maí 2025 14:40 Novo Nordisk orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk hefur hagnast um rúmlega tólf hundruð milljarða íslenskra króna það sem af er ári. Þessi methagnaður einn og sér er ástæða þess að hagvöxtur í Danmörku er jákvæður í stað þess að vera neikvæður, en fyrirtækið er nú talið verðmætasta fyrirtæki Evrópu. 5. nóvember 2023 23:44 Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira
Gengi Novo Nordisk steypist niður Hlutabréfaverð í danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk hefur steypst um hátt í tuttugu prósent um leið og væntingar af lyfjasölu í Bandaríkjunum hafa dregist saman. Í miðju blóðbaðinu tilkynnti fyrirtækið að það hafi valið sér nýjan forstjóra. 29. júlí 2025 11:57
Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk, eitt verðmætasta fyrirtæki Evrópu, tilkynnti í dag að það hefði rekið forstjóra sinn í skugga vaxandi samkeppni. Í tíð forstjórans hefur hagnaður fyrirtækisins nærri þrefaldast þökk sé þyngdarstjórnunar- og sykursýkislyfja þess. 16. maí 2025 14:40
Novo Nordisk orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk hefur hagnast um rúmlega tólf hundruð milljarða íslenskra króna það sem af er ári. Þessi methagnaður einn og sér er ástæða þess að hagvöxtur í Danmörku er jákvæður í stað þess að vera neikvæður, en fyrirtækið er nú talið verðmætasta fyrirtæki Evrópu. 5. nóvember 2023 23:44