Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar 12. september 2026 08:01 Þegar dómurinn féll á sínum tíma fannst mér eins og allir vissu af honum. Það hjálpaði auðvitað ekki að mynd af mér birtist í blöðunum, nafnið mitt, andlitið og sagan sem ég hefði helst viljað geta falið einhvers staðar þar sem enginn sæi hana. Í mínum huga varð þetta ekki bara frétt, heldur eitthvað sem fylgdi mér út úr húsi, inn í búðir, í vinnu, á fundi og inn í hvert herbergi sem ég gekk inn í, þangað til ég hætti smám saman að ganga inn í þau. Ég lét mig hverfa í lærdóm heima fyrir, því þar fannst mér ekki horft á mig. Bækurnar breyttust í eins konar felustað, ekki vegna þess að ég hefði svo brennandi áhuga á efninu, heldur vegna þess að við skrifborðið gat enginn litið á mig of lengi, enginn orðið þögull þegar ég kom nær. Ég man þessa tilfinningu vel, að horfa á fólk úti í búð og velta fyrir mér hvort það vissi. Kannski hafði það verið að tala um mig. Kannski hafði fólk þegar gert sér ákveðna mynd af mér áður en ég fékk tækifæri til að segja eitt einasta orð. Það þurfti enginn að segja neitt, ég sá um restina sjálfur, heima, við skrifborðið, innan um bækurnar sem enginn spurði mig út í. Það var víst eitthvað þægilegt við þessa útlegð. Heima var hægt að stjórna því hver sá mann og hvenær. Ég gat lagt frá mér bók, staðið upp, gengið um herbergið og enginn fylgdist með svipnum á mér á meðan. Ég man að mér fannst þessi tilhögun næstum skynsamleg, eins og ég hefði fundið út úr einhverju sem aðrir höfðu ekki áttað sig á, að það væri einfaldlega best að draga sig í hlé þangað til heimurinn hætti að horfa. Ég vissi ekki þá að heimurinn var hættur að horfa löngu áður en ég leyfði mér að koma aftur fram. Svo liðu árin og smám saman fór ég að rekast á eitthvað sem kom mér furðulega mikið á óvart. Fólk vissi þetta ekki. Sumir sem ég hafði talið að hlytu að vita höfðu aldrei heyrt af þessu. Aðrir mundu kannski óljóst eftir einhverju, en alls ekki því sem mér hafði fundist ómögulegt að nokkur gæti gleymt. Í fyrstu fannst mér þetta nánast ótrúlegt. Þetta hafði jú tekið svo mikið pláss í mínu lífi, svo mikið að ég hafði skipulagt heilu árin í kringum það, valið bækur fram yfir fólk, herbergi fram yfir búðir. Og svo komst ég að því að fyrir annað fólk hafði þetta kannski bara verið frétt sem það las með kaffinu einn morguninn og gleymdi síðan. Heimurinn hafði haldið áfram á meðan ég sat heima og faldi mig fyrir honum. Ég hefði átt að verða feginn, enda hafði ég óskað þess svo lengi að fólk gleymdi, svo að ég þyrfti ekki lengur að ganga um með þessa tilfinningu að allir vissu. Og ég fann vissulega fyrir ákveðnum létti. En það var eitthvað annað þarna líka, eitthvað sem ég skildi ekki strax og fannst næstum vandræðalegt að viðurkenna, ég varð fyrir vonbrigðum. Hvernig gat ég verið vonsvikinn yfir því að fólk hefði gleymt einhverju sem ég hafði árum saman óskað þess að það gleymdi? Þessi mótsögn sat lengi í mér, þar til ein hugsun virtist loksins ná utan um hana: Enginn man þetta lengur, en um leið og ég hugsaði það kom önnur hugsun, næstum eins og svar úr einhverjum öðrum stað í mér: Síðan hvenær er ég enginn? Ég mundi þetta, ég man hvernig þetta var, hvað áhrif þetta hafði á mig, hvernig ég valdi skrifborðið fram yfir dyrnar í mörg ár af því að skrifborðið dæmdi mig ekki. Ég man óttann, skömmina og tilfinninguna að vera orðinn að einhverju sem ég hafði ekki lengur fulla stjórn á. Og kannski var það einmitt þetta sem ég hafði misst sjónar á, þ.e. þegar maður segir að enginn muni, er eins og minni annarra sé orðið mælikvarðinn á raunveruleika reynslunnar. Ef samfélagið er búið að gleyma, ef fólkið í kringum mann mundi þetta ekki lengur, þá á eitthvað í manni að anda léttar og halda áfram. En minnið mitt hvarf ekki með minni annarra og árin sem ég sat heima innan um bækurnar hurfu ekki heldur. Kannski var það ekki einu sinni þannig að ég vildi að fólk myndi dóminn sjálfan. Kannski vildi einhver hluti af mér að fólk myndi hvað hann kostaði mig, öll árin sem fóru í að fela mig, herbergin sem ég valdi ekki að ganga inn í. Það er allt annað en að vilja athygli. Það er eitthvað mannlegt í því að vilja að stór reynsla fái að vera stór, að eitthvað sem breytti manni verði ekki minnkað niður í þá staðreynd að aðrir séu löngu búnir að gleyma því. Þegar eitthvað hefur verið þungt að bera er einkennilega auðvelt að tengja þyngdina við það hvort aðrir sjái hana. Ef enginn sér, var hún þá raunverulega svona þung? Auðvitað var hún það. Ég held að ég hafi lengi látið minningar annarra ráða því hversu mikið vægi ég gaf eigin reynslu. Í fyrstu var ég sannfærður um að allir horfðu á mig og faldi mig því heima við skrifborðið. Síðar áttaði ég mig á því að athygli annarra hafði hvorki verið jafn mikil né varað jafn lengi og ég hafði ímyndað mér. Samt hélt einhver hluti af mér áfram að meta mikilvægi reynslunnar út frá því hvort aðrir mundu hana. Annaðhvort hlytu allir að vera að hugsa um mig eða enginn. Hvorugt var satt. Herbergin sem ég forðaðist voru aldrei jafn full af dæmandi augum og óttinn hafði talið mér trú um. Ég þarf ekki á því að halda að aðrir muni til þess að geta viðurkennt fyrir sjálfum mér hversu djúp áhrif þetta hafði á mig. Árin sem ég faldi mig heima við skrifborðið voru jafnraunveruleg og dómurinn sjálfur. Leiðin áfram felst hvorki í því að gera lítið úr fortíðinni né halda henni á lofti svo að aðrir gleymi henni ekki, heldur í því að geta sagt: Þetta gerðist. Ég faldi mig. Ég man það og það nægir til að reynsla mín sé raunveruleg. Það er undarlegt til þess að hugsa að eitt sinn óttaðist ég ekkert meira en að allir myndu muna. Óttinn við augnaráð annarra varð svo yfirþyrmandi að ég lokaði mig af með bókunum. Síðan uppgötvaði ég að flestir höfðu gleymt og það tók mig langan tíma að skilja hvers vegna sú uppgötvun særði mig meira meira en ég hafði búist við. Enginn mundi nema ég. Og síðan hvenær er ég enginn? Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar