Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Valur Páll Eiríksson skrifar 12. september 2026 08:00 Norðurstúkan, Curva Nord, á Ólympíuvellinum er venjulega yfirfull af fótboltabullum sem öskra úr sér lifur og lungu í 90 mínútur. Hún situr nú tóm á meðan Lazio spilar sína heimaleiki. Getty Fámennt verður á Ólympíuleikvanginum í Róm þegar Lazio tekur á móti AC Milan í stórleik í ítölsku A-deildinni í dag. Lazio er með fullt hús á toppi deildarinnar en samt neita stuðningsmenn liðsins að mæta á völlinn. Aðeins sex þúsund manns sáu eina heimaleik Lazio á tímabilinu í deildinni til þessa er liðið vann 1-0 sigur á Genoa. Segja má að þeir sem hafi látið sjá sig hafi verið eins og krækiber í helvíti á rúmlega 70 þúsund sæta Ólympíuvelli í Róm. Lazio hefur byrjað tímabilið glimrandi vel undir stjórn Gennaro Gattuso sem tók við í sumar. Lazio er með fullt hús stiga við topp deildarinnar eftir þrjá leiki. Það á mikilvægan stórleik fyrir höndum við AC Milan klukkan 16:00 í dag en aðeins er búist við um 15 þúsund manns á leikinn. Þar af eru 10 þúsund stuðningsmenn gestanna frá Mílanó. Leikmenn Lazio höfðu ekki marga til að fagna með eftir sigur á Genoa fyrir tveimur vikum.Vísir/Getty Ástæðan er Claudio Lotito, sem hefur verið eigandi Lazio frá árinu 2004, og harðvígar deilur hans við stuðningsmenn. Gremja í hans garð vegna meintrar vanvirðingar og metnaðarleysis gagnvart félaginu hefur grasserað í áraraðir. Þunglyndisleg staða Harðasti stuðningsmannahópurinn, ultras-hópur Lazio, kallaði eftir aðgerðum fyrir leik við Genoa í lok janúar á þessu ári. Þar mættu aðeins fimm þúsund manns, 3.400 manns mættu á leik við Atalanta tveimur vikum síðar og aðeins 2.000 á leik við Sassuolo í mars, við súrreallískar aðstæður. Samstaðan er því mikil á meðal stuðningsmanna félagsins líkt og sjá má á tölunum. Það er í samræmi við einkennisorð þeirra sem styðja félagið: ‘Se i Laziali sono uniti, non verranno mai sconfitti’, sem má þýða sem „ef stuðningsmenn Lazio standa saman mun ekkert sigra okkur.“ Albert Guðmundsson skoraði sigurmarkið í frumraun sinni fyrir Lazio í vikunni. Stuðningsmenn fjölmenntu þangað, enda útileikur sem fram fór í Udine. Þeir neita hins vegar að mæta á heimavöllinn.Vísir/Getty Maurizio Sarri, þáverandi þjálfari liðsins, sem er í miklum metum á meðal stuðningsmanna, sagði stöðuna þunglyndislega og að hún gæti ekki viðhaldist til lengri tíma. Sniðganga ástarinnar vegna Staða stuðningsmanna var ítrekuð fyrir yfirstandandi leiktíð. Ársmiðahöfum fækkaði um 93 prósent milli ára, þar sem færri en 2.500 ársmiðar seldust í sumar, eftir að hafa staðið í 30 þúsund árin þrjú á undan. Mæting á heimaleiki Lazio frá í janúar 30. jan: Genoa - 5.400 14. feb: Atalanta - 3.400 9. mars: Sassuolo - 2.000 4. mars: Atalanta (bikar) - 5.000 15. mars: AC Milan - 50.000 4. apríl: Parma - 6.000 27. apríl: Udinese - 4.000 9. maí: Inter - 23.979 23. maí: Pisa - 6.886 16. ágúst: Mantova (bikar) - 6.286 30. ágúst: Genoa - 6.058 Meðaltal: 10.819 Meiriháttar mótmæli voru þá skipulögð í júlí. Þar kölluðu Lazio-menn „Libera la Lazio“ – „Frelsið Lazio“. Samanborið við tvö þúsund selda ársmiða komu 20 þúsund stuðningsmenn félagsins saman á strætum Rómarborgar og kölluðu eftir breytingum. Þeir segja einskæra ást (estremo atto d’amore) hvatninguna á bakvið þá ákvörðun að skilja völlinn eftir tóman. Hvað eru menn svona ósáttir við? Stuðningsmenn Lazio hafa löngum sakað Lotito um skort á metnaði. Félagið varð ítalskur meistari árið 2000 og skartaði þá mörgum af skærustu stjörnum heimsfótboltans. Pavel Nedved, Juan Sebastian Verón og Alessandro Nesta eru örfá dæmi um leikmenn liðsins í byrjun aldarinnar. Byrjunarlið Lazio fyrir úrslitaleik í Evrópukeppni bikarhafa vorið 1999. Þar voru engir aukvisar. Efri röð: Alessandro Nesta, Christian Vieri, Sinisa Mihajlovic, Giuseppe Pancaro, Luca Marchegiani og Roberto Mancini. Neðri röð: Dejan Stankovic, Giuseppe Favalli, Matias Almeyda, Pavel Nedved og Marcelo Salas.Vísir/Getty Á undanförnum árum hefur liðinu tekist að eiga sérlega góð tímabil inn á milli en þeim hefur aldrei verið fylgt eftir með styrkingu og sókn eftir frekari framfaraskrefum, samkvæmt stuðningsmönnunum. Tímabilin 2015-16, 2018-19, 2020-21 og 2023-24 eru öll dæmi um slíkt. Þar næst góður árangur en því er ekki fylgt eftir. Áðurnefndur Sarri stýrði Lazio í annað sæti deildarinnar vorið 2024 og kallaði eftir sterkum leikmönnum til að sækja að titlinum árið eftir. Hann vildi þá fá Domenico Berardi og Piotr Zielinski en hvorugur kom. Sarri sagðist hafa „beðið um leikmann A en svo þurft að velja milli C og D.“ Maurizio Sarri var vinsæll hjá stuðningsmönnum og náði fínum árangri. Hann fékk hins vegar ekki stuðninginn sem þurfti til að taka næsta skref.Vísir/Getty Lotito hafi þá ekkert lagt til innviða félagsins; akademíunnar, æfingasvæðisins eða slíks og stöðnunin sé algjör á meðan önnur lið taki framfaraskref. „Lotito hefur alltaf farið gegn stuðningsmönnunum og sett eigin hagsmuni ofar þeim hjá félaginu,“ segir blaðamaðurinn Raniero Altavilla. Stuðningsmenn Lazio segja hann metnaðarlausan og að Lotito vanvirði ekki aðeins þá heldur einnig hefðir og sögu félagsins. Þarf að bjarga pólitíska ferlinum? Sniðganga stuðningsmanna Lazio nær þá út fyrir fótboltavöllinn. Hún hefur ekki aðeins áhrif á veski Lotito og ítalska félagsins sökum dræmrar miðasölu þar sem áhrifa gætir einnig hvað varðar pólitískan feril eigandans. Lotito er öldungardeildarþingmaður fyrir miðhægri flokkinn Forza Italia eftir að hafa hlotið kjör árið 2022. Fjölmargir borðar hafa sést víða um Rómarborg þar sem er skrifað: „Engin atkvæði fyrir Forza Italia ef Lotito er áfram hjá Lazio“. Eigandinn Claudio Lotito er hér ásamt Miroslav Klose þegar hann lék með Lazio á sínum tíma.vísir/getty Lotito er því að verða dragbítur á eigin flokk og gæti kostað hann tugþúsunda atkvæða frá stuðningsmönnum Lazio sem almennt eru hægra megin í pólitíska lífinu, enda klúbburinn og stuðningsmennirnir verið tengdur við fasisma í áraraðir. Hvað gerist næst? Stuðningsmenn Lazio segja ást að baki því að þeir taki þá sársaukafullu ákvörðun að mæta ekki á völlinn. Ekki er útlit fyrir að mótmælin og sniðganga þeirra hætti á næstunni og virðast þeir staðráðnir í því að neyða Lotito á brott. Undanþága var gerð á sniðgöngunni þegar AC Milan kom í heimsókn í vor og 50.000 manns létu sjá sig en mottó samstöðu hefur aldrei verið eins sterkt hjá stuðningsmönnum sem halda sig fjarri Olimpico í dag. Hvort og hvenær það raungerist að Lotito raunverulega hverfi á braut verður fróðlegt að fylgjast með en Albert og félagar þurfa líklega að venja sig á það að spila nánast fyrir luktum dyrum næstu mánuði. Ítalski boltinn Fréttaskýringar Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Sjá meira
Mæting á heimaleiki Lazio frá í janúar 30. jan: Genoa - 5.400 14. feb: Atalanta - 3.400 9. mars: Sassuolo - 2.000 4. mars: Atalanta (bikar) - 5.000 15. mars: AC Milan - 50.000 4. apríl: Parma - 6.000 27. apríl: Udinese - 4.000 9. maí: Inter - 23.979 23. maí: Pisa - 6.886 16. ágúst: Mantova (bikar) - 6.286 30. ágúst: Genoa - 6.058 Meðaltal: 10.819
Ítalski boltinn Fréttaskýringar Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Sjá meira