Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Agnar Már Másson skrifar 10. september 2026 21:09 Frá fundinum í dag. Kínverska sendiráðið. He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, hitti í dag Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegamálaráðherra þar sem þau ræddu um ferðamennsku, fisk og viðskipti auk „beins“ flugs milli Kína og Íslands sem á að hefajst 26. október.
Sendiráðið greindi frá þessu í Facebook-færslu en þar segir að Ísland njóti mikilla vinsælda í Kína enda hafi tíu milljónir Kínverja birt færslu sem er staðarmerkt Íslandi inni á kínverska samfélagsmiðlinum WeChat. Þá segir að líklegt sé að fjöldi kínverskra túrista muni aukast, einkum á veturna þegar norðurljós sjást vel víða um landið. „Samkvæmt nýjustu leiðbeiningum um mataræði fyrir íbúa Kína er hvatt til neyslu á sjávarafurðum í Kína til að tryggja betri næringu og heilsu kínverskra borgara. Íslenskur þorskur, lax og aðrar fiskafurðir henta vel til að mæta eftirspurn vaxandi fjölda fólks í kínversku millistéttinni,“ skrifar sendiráðið en Kína er stærsti útflutningsaðili fisks á heimsvísu og Kínverjar eru taldir borða rúmlega þriðjung alls þess fisks sem neytt er í heiminum. Bæði ráðherrann og sendiherrann eru sagðir vongóðir um að aukin viðskipti auki enn frekar „skilning og vináttu“ milli þjóðanna tveggja. Flug milli Íslands og Kína á að hefjast í lok október. Flogið verður með breiðþotu þrisvar í viku milli Keflavíkurflugvallar og Alþjóðaflugvallar Peking (PEK), höfuðborgar Kína. Flugið mun taka um þrettán tíma en við það bætist millilending í Kaupmannahöfn þar sem stoppað verður í tvær klukkustundir, að því er fram kom í svari sendiráðsins við fyrirspurn Vísis í sumar. Færsla kínverska sendiráðsins.Skjáskot/Facebook
Utanríkismál Kína Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira