Halla hæstánægð með stólaskiptin Agnar Már Másson skrifar 10. september 2026 19:16 Halla Hrund Logadóttir er ekki lengur aðalmaður Framsóknar í neinni þingnefnd en hún segist sjálf hafa óskað eftir þessum breytingum til þess að fá sæti áheyrnarfulltrúa í atvinnuveganefnd „þar sem hjartað slær“. Vísir/Vilhelm „Ég er ótrúlega ánægð með þessa breytingu og það er að minni ósk sem ég er í þessum nefndum,“ segir þingmaðurinn Halla Hrund Logadóttir eftir að þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti stólaskipti í nefndarsætum. Það skipti hana engu hvort hún sé aðalmaður, varamaður eða áheyrnarfulltrúi í nefndinni; það breyti litlu þegar maður er í stjórnarandstöðu.
Greint var frá því í dag að Halla yrði ekki lengur aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd og því orðin eini þingmaður flokksins sem ekki hefði aðalmannssæti í nefndum. Halla segist sjálf hafa óskað eftir því að sitja frekar í atvinnuveganefnd, þó ekki væri nema sem áheyrnarfulltrúi, enda brenni hún fyrir þeim málefnum sem heyra undir nefndina. „Mér bauðst að vera aðalmaður í öðrum nefndum en af því að þessi málefni eru þau málefni sem ég brenn fyrir þá afþakkaði ég það boð og sóttist eftir því að vera þar sem hjartað slær og þar sem ég ætla að hafa áhrif á þessu kjörtímabili,“ bætir hún og nefnir í því samhengi jarðakaup útlendinga, sjávarútveg, auðlindir, raforkuöryggi heimila, orkumál, orkuöryggi heimilanna og fleira. Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður sagði sömuleiðis við Vísi að uppstokkunin hefði verið gerð í fullri sátt innan þingflokksins. Hann tók fram að Halla nyti enn fulls trausts. Halla verður einnig áfram varamaður í utanríkismálanefnd en verður nú áheyrnarfulltrúi í atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þar sem Framsókn hefur aðeins fimm þingmenn hefur flokkurinn ekki aðalmannssæti í öllum fastanefndum. „Fyrir þingmann í stjórnarandstöðu skiptir engu máli hvort viðkomandi sé aðalmaður eða í þessu hlutverki. Það er jafn mikil þátttaka og felur í starfi,“ bætir Halla við að lokum.
Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira