Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Birgir Olgeirsson skrifar 10. september 2026 17:38 Frá vinstri: Þórarinn Ingi Pétursson, Stefán Vagn Stefánsson og Halla Hrund Logadóttir. Þórarinn tekur við aðalmannssæti Höllu í umhverfis- og samgöngunefnd. Vísir Uppstokkun á nefndasætum Framsóknar var samþykkt samhljóða eftir samráð við alla þingmenn flokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður segir Höllu Hrund Logadóttur áfram njóta fulls trausts þótt hún missi sitt eina aðalmannssæti í fastanefnd.
Tilkynnt var um breytingarnar á Alþingi í morgun. Þórarinn Ingi Pétursson tekur sæti Höllu sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd. Hann tekur einnig sæti Ingibjargar Isaksen í velferðarnefnd. Ingibjörg tekur á móti sæti Stefáns Vagns í fjárlaganefnd. Fleiri breytingar verða á varamannssætum. Halla verður áfram varamaður í utanríkismálanefnd og áheyrnarfulltrúi í tveimur öðrum nefndum en stendur nú án aðalmannssætis í fastanefnd. Þórarinn hafði ekkert aðalmannssæti Stefán segir ákveðið hafa verið að breyta nefndaskipan um mitt kjörtímabil, meðal annars í fjárlaganefnd. Þórarinn hefði ekki verið aðalmaður í neinni nefnd fyrri hluta kjörtímabilsins og því hefði þótt eðlilegt að hann fengi aðalmannssæti seinni hlutann. Stefán hafði þegar sagt í mars að þingflokkurinn ætti eftir að fara yfir nefndaskipan. Þá sat Þórarinn ekki í neinni fastanefnd en var áheyrnarfulltrúi í tveimur. Samþykkt samhljóða Stefán segir breytingar á nefndaskipan vera á forræði þingflokksformanns. Niðurstaðan hafi verið fengin eftir samtal við alla þingmenn Framsóknar og síðan borin undir þingflokkinn. Ákvörðunin hafi verið samþykkt samhljóða og ekkert ósætti verið um skiptinguna. Samráð hafi verið haft við Höllu um nefndasetu hennar og tekið mið af hennar óskum. Stefán segir hana áfram njóta fulls trausts þingflokksins.
Alþingi Framsóknarflokkurinn Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira