Enski boltinn

Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma

Andri Broddason skrifar
Þrátt fyrir að hafa klippt hárið sitt þá heldur Erling Haaland áfram að skora.
Þrátt fyrir að hafa klippt hárið sitt þá heldur Erling Haaland áfram að skora. Vísir/getty/Mark Cosgrove

Erling Haaland var á skotskónum fyrir Manchester City í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri á Porto í Meistaradeild Evrópu. Jamie Carragher er sannfærður um að hann verði besti markaskorari allra tíma.

Eftir að hafa skorað tvö mörk í leik gærkvöldsins varð Haaland þriðji markahæsti leikmaður í sögu Manchester City. Hann á þó langt í land til að ná metinu en Sergio Aguero er markahæsti leikmaður liðsins með 260 mörk en Haaland er enn bara með 167 mörk í 203 leikjum.

Jamie Carragher sagði á CBS Sports að hann gæti orðið besti markaskorari allra tíma.

„Ég get ekki séð fyrir mér að Haaland skori ekki þúsund mörk eða verði besti markaskorari allra tíma. Ég hef ekki séð annan eins leikmann varðandi mörk því hann skorar í hverjum leik. Hann gerir þetta svo oft að þetta verður ekki merkilegt,“ sagði Jamie Carragher um frammistöðu Erling Haaland.

„Hann skoraði tvö mörk á útivelli í Meistaradeild Evrópu. Ef einhver annar framherji gerir það er það frábært kvöld en fyrir Haaland er þetta bara venjulegt kvöld. Ég sé ekki hvernig hann getur ekki orðið markahæsti leikmaður sem við höfum séð nokkurn tímann.“

Erling Haaland hefur nú skorað 59 mörk í Meistaradeild Evrópu í 59 leikjum fyrir bæði Manchester City og Borussia Dortmund. Sömuleiðis byrjar hann vel á tímabilinu þar sem hann er búinn að skora fimm mörk í fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×