Handbolti

ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA

Sindri Sverrisson skrifar
Magnús Dagur Jónatansson er fluttur til Vestmannaeyja og tilbúinn að láta til sín taka með ÍBV.
Magnús Dagur Jónatansson er fluttur til Vestmannaeyja og tilbúinn að láta til sín taka með ÍBV. ÍBV

Miðjumaðurinn efnilegi Magnús Dagur Jónatansson hefur sagt skilið við KA og er genginn í raðir ÍBV, nú þegar handboltaleiktíðin er nýhafin.

Magnús Dagur er aðeins 19 ára, sonur Jónatans Magnússonar fyrrverandi leikmanns og þjálfara KA, en hefur þegar leikið 81 leik fyrir KA í meistaraflokki. Hann skoraði 44 mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð í Olís-deildinni, eða tvö mörk að meðaltali í leik, og gerði fjögur mörk í sigrinum gegn HK í fyrstu umferð þessarar leiktíðar.

Magnús Dagur er uppalinn hjá KA og vann fjölda titla með yngri flokkum félagsins, þar á meðal hið virta Partille Cup þar sem sterkustu lið Norðurlandanna taka þátt.

Hann verður tvítugur í nóvember og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Nú síðast lék hann á EM í Rúmeníu í sumar, með U20 ára landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×