Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2026 09:25 Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hefur meðal annars veitt loðnu í íslensku lögsögunni. Flauta skipsins vakti marga íbúa í vestanverðri borginni í morgun. Vísir/KMU Margir miðborgar- og vesturbæjarbúar vöknuðu við hávært flaut snemma í morgun. Flauta á grænlensku uppsjávarskipi sem liggur við Grandabryggju sem gleymdist að taka úr sambandi var ástæðan.
Flautið byrjaði að óma um vesturhluta borgarinnar um klukkan sex í morgun. Á samfélagsmiðlum töldu sumir að þær minntu helst á þegar Almannavarnir prófuðu reglulega loftvarnarflautur á síðustu öld. Ástæðan var þó ekki yfirvofandi loftárás heldur skipsflauta sem gleymst hafði að slökkva á. Flautið hófst þegar viðvörunarkerfi Polar Amaroq, grænlensks uppsjávarskips, sem liggur við Grandabryggju fór í gang í morgun. Kerfið er tengt skipsflautunni sem fer í gang þegar viðvörunarkerfið fer í gang. „Við hafnarkomu á alltaf að aftengja flautuna með því að taka loftið af henni þannig að hún flauti ekki en fyrir mistök láðist áhöfninni að gera það við komu í höfn og þegar aðvörun fór í gang í morgun þá flautaði skipsflautan,“ segir Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Vélstjóri grænlenska skipsins aftengdi flautuna í morgun og því ætti hún ekki að raska ró borgarbúa frekar. „Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum,“ segir yfirhafnsögumaðurinn fyrir hönd Faxaflóahafna.
Hafnarmál Sjávarútvegur Reykjavík Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira