„Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Aron Guðmundsson skrifar 7. september 2026 20:45 Pal Anders var hrærður eftir framúrskarandi vinnu viðbragðsaðila og frábæra heilbrigðisþjónustu heima fyrir í Noregi eftir að hann slasaðist alvarlega í þriðja sinn á sínum ferli í mótókrossi um síðastliðna helgi Mynd: NRK / Tobias Prosch Simonsen Norska mótorsportgoðsögnin Pål Anders Ullevålseter er þakklátur viðbragðsaðilum í Noregi eftir að hann slasaðist alvarlega í þriðja sinn á laugardaginn síðastliðinn.
Pål Anders liggur nú inni á sjúkrahúsi í Ósló þar sem að blaðamaður NRK náði af honum tali en núna um helgina, í keppni í útjaðri Ósló, féll Pål Anders af hjóli sínu í stökki og viðbeinsbrotnaði auk þess sem hann braut þrettán rifbein. Þá er hann með sjáanlega áverka á andliti eftir fallið. Blaðamaður NRK sagði Pål Anders auðsjáanlega vera hrærðan. „Mér finnst hjálpin sem ég hef fengið alveg frábær. Næst þegar að ég borga skatta mun ég ekki kvarta,“ sagði norski kappinn ánægður með heilbrigðisþjónustuna ytra. Slysið átti sér stað á Super Enduro meistaramóti á braut í Kongsberg á laugardaginn. „Ég stökk aðeins of stutt og datt fram fyrir mig. Við lendinguna á braut ég viðbein og rifbein. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir að það sé allt og sumt. Þetta grær.“ Hann hrósar viðbragðsaðilum á vegum keppninnar en læknar á staðnum hlúðu að honum áður en Pål Anders var fluttur með sjúkraþyrlu til Ósló. Pål Anders er 57 ára gamall og enn að. Hann er einn sigursælasti mótorhjólakappi Noregs frá upphafi og varð meðal annars Evrópumeistari í Enduro árið 2000 og heimsmeistari í eyðimerkurralli árið 2004. Þetta er í þriðja sinn á 39 ára ferli hans í mótorsportinu sem Pål Anders slasast alvarlega á ferlinum.
Akstursíþróttir Noregur Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Sjá meira