Innlent

Halla boðar til ríkisráðsfundar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Af síðasta ríkisráðsfundi á Bessastöðum í janúar þar sem Ragnar Þór Ingólfsson tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra.
Af síðasta ríkisráðsfundi á Bessastöðum í janúar þar sem Ragnar Þór Ingólfsson tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum í dag venju samkvæmt. Alþingi verður sett á ný á morgun.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, býður ráðherrum í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á Bessastaði á ríkisráðsfund. Fundurinn er klukkan eitt í dag. Forsetinn og ráðherrarnir mynda ríkisráð Íslands.

Á ríkisráðsfundum bera ráðherrarnir undir forseta öll lög, bráðabirgðalög og mikilvægar stjórnarráðstafanir. Þar má nefna lagafrumvörp, tillögur um að kveða saman Alþingi, tillögur um breytingar á embættum sem forseti veitir og samninga við erlend ríki sem þurfa staðfestingar ríkisstjóra.

Þing verður sett á morgun og er venjan sú að ríkisráðið fundi fyrir þingsetninguna. Stefnuræða forsætisráðherra verður flutt á miðvikudag en í dag kynnir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Til stendur að hefja umræðu um frumvarpið á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×