Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 5. september 2026 16:51 Hlaupið hófst klukkant tíu í morgun. Þessi mynd ef frá fyrra hlaupi. aðsend Bakgarðshlaup fer nú fram á Reyðarfirði í fjórða sinn. Fleiri en sjötíu taka þátt og rennur allt fé sem safnast í góðgerðarmál.
Fyrirmyndin er hið landsþekkta bakgarðshlaup sem fer fram ár hvert á höfuðborgarsvæðinu þegar fólk hleypur sama hringinn aftur og aftur, í sumum tilfellum í nokkra daga. Hjónin Anna Sigrún Jóhönnudóttir og Gunnar Lárus Karlsson standa fyrir hlaupinu en það fór fyrst fram fyrir fjórum árum og var ráslínan þá í bakgarðinum hjá þeim hjónum. „Maðurinn minn, Gunnar Lárus, er sem sagt hlaupari. Hann hefur verið að keppa í bakgarðinum, er í landsliðinu og hann langaði bara að hafa Bakgarðshlaup hér og þurfa ekki alltaf að fara til Reykjavíkur. En svo varð þetta bara stærra og rosalega mikill áhugi. Við bjuggumst við kannski 10 manns hérna í bakgarðinum hjá okkur fyrsta árið en það voru örugglega 40.“ Hvatning fyrir íbúa Því var ekki aftur snúið. Tvær vegalengdir eru í boði, hefðbundinn 6,7 kílómetra hringur og styttri vegalengd sem kallast skemmtigarðurinn. Allur peningur sem safnast með hlaupinu rennur til góðgerðarmála. „Núna erum við að styrkja það sem heitir Okkar heimur sem er félag fyrir börn sem eiga foreldra með geðræn vandamál. Það sem safnast fer í að fá þau hingað austur til okkar með fræðslu og stuðning. Þannig að við reynum alltaf að miða þetta að einhverju sem nýtist okkur hér og það hvetur fólk dálítið áfram.“ Hún hvetur þá sem eru staddir fyrir austan til að mæta og hvetja hlauparana áfram. „Við viljum bara hvetja öll til að koma saman og gera góðan dag.“
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira