Hadjar frá í aðra keppni Andri Broddason skrifar 2. september 2026 19:30 Isack Hadjar missir af annarri keppni vegna meiðsla sem hann fékk í sumarfríinu sínu. Jakub Porzycki/Getty Images Isack Hadjar verður ekki með Red Bull um helgina í ítalska kappakstrinum en hann er ekki enn búinn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í sumarfríinu í Formúlu 1. Liam Lawson verður þá áfram hjá Red Bull um helgina og Yuki Tsunoda fær að spreyta sig í annarri keppni.
Hefð er fyrir því að eins mánaðar sumarfrí sé haldið í ágúst og koma flestir ökumenn endurnærðir eftir það og klárir í seinni hluta tímabilsins. Það gerðist þó ekki fyrir Isack Hadjar ökumann Red Bull þar sem hann fór á boxæfingu í sumarfríinu sínu sem endaði með því að hann brákaðist á úlnlið. Hann gat ekki verið með í hollenska kappakstrinum sem var haldinn fyrir tveimur vikum en Red Bull gerði ráð fyrir að Hadjar yrði klár fyrir ítalska kappaksturinn sem er um helgina. Hadjar reyndist ekki hafa jafnað sig nógu hratt og þarf því að sitja á hliðarlínunni annan kappaksturinn í röð. Liam Lawson, ökumaður RB, keyrði Red Bull-bíl Hadjar í hollenska kappakstrinum í fjarveru hans og mun gera það aftur í ítalska kappakstrinum. Lawson endaði í sjöunda sæti hollenska kappaksturisins sem verður að teljast fínasti árangur í bíl sem hann er óvanur. Á meðan Lawson hefur verið að keyra fyrir Red Bull hefur Yuki Tsunoda keyrt RB-bílinn hans Lawson. Tsunoda var grátlega nálægt því að fá stig í hollenska kappakstrinum en hann endaði keppnina í ellefta sæti. Hann mun þó fá annað tækifæri í ítalska kappakstrinum á meðan Lawson keyrir fyrir Red Bull. Red Bull beið með að taka ákvörðun um Hadjar eins lengi og mögulegt var. Í dag virðist það hafa komið í ljós að Hadjar væri ekki búinn að ná sér fyrir föstudaginn. Keppt á nýrri braut eftir Ítalíu Spænski kappaksturinn fer fram vikuna eftir ítalska kappaksturinn og vonast Red Bull-liðið til þess að Hadjar verði orðinn ökufær þá. Liðið vill þó ekki taka óþarfa áhættu og liðið ætlar aðeins að leyfa honum að keyra ef hann er heill heilsu. Spænski kappaksturinn mun fara fram á nýrri braut sem er búið að byggja á götum Madridar. Mikil spenna er fyrir glænýrri braut og þurfa ökumenn að vera fljótir að læra á hana.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn