„Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Andri Broddason skrifar 31. ágúst 2026 17:16 Unai Emery segir samband Aston Villa og Chelsea ekkert sérstakara frekar en önnur félög í ensku úrvalsdeildinni. ames Gil/Getty Images Engin félög hafa skipt jafn mörgum leikmönnum á milli sín í ensku úrvalsdeildinni síðustu fjögur ár heldur en Aston Villa og Chelsea. Unai Emery, þjálfari Aston Villa, þvertekur þó fyrir að sambandið snúist um eitthvað annað en peninga.
Mikið af leikmönnum hafa farið milli Aston Villa og Chelsea síðustu ár en Emiliano Martinez var áttundi leikmaðurinn á fjórum árum til þess að fara milli þessara liða. Hann gekk til liðs við Chelsea frá Aston Villa um helgina og fór beint í byrjunarlið Chelsea. Unai Emery lagði áherslu á það í viðtali að sambandið milli liðanna væri ekkert sérstakt. „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur. Við höfum góða leikmenn og við getum keypt leikmenn frá þeim. Þetta samband er ekkert sérstakt, aðeins samband um peninga og leikmenn.“ Fleiri viðskipti með nýjum eigendum Eftir að nýir eigendur tóku við Chelsea byrjaði félagið að sækja ýmsa leikmenn frá Aston Villa. Árið 2022 fékk Chelsea Carney Chukwuemeka frá Villa og urðu skiptin fleiri næstu ár á eftir. Í sumar hafa fjórir leikmenn farið milli liðanna sem má teljast frekar mikið. Stærstu félagsskiptin milli liðanna voru þegar Morgan Rogers fór til Chelsea fyrir 117 milljónir punda. Einnig, eins og áður sagði, fór Emiliano Martinez til Chelsea um helgina. Alejandro Garnacho fór til Aston Villa að láni og Nicolas Jackson var keyptur til Villa. Síðan árið 2022 hefur Chlesea borgað Aston Villa 163,5 milljónir punda og Aston Villa borgað Chelsea 102,5 milljónir á móti. Þessi miklu viðskipti milli félaga hafa vakið upp ákveðnar spurningar um hvort félögin séu að vinna saman við að hagræða bókhaldinu svo það standist reglur. Það er þó ekkert sem bendir til þess að það sé í gangi.
Enski boltinn Aston Villa FC Chelsea FC Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti Fleiri fréttir Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Sjá meira