Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 16:30 Sigrún Ósk Arnardóttir er aðstoðarforstöðukona í frístundaheimili. Samsett Aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans í Breiðholti harmar breytingar á skipuriti Reykjavíkurborgar sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna. Hún spyr hvort það sé í lagi að betra Excel-skjal sé á kostnað barnanna. „
Þetta kemur eins og reiðarslag á þriðjudaginn. Þá byrjar að kvisast út að það séu stórar breytingar í vændum og að það sé verið að segja upp fólki,“ segir Sigrún Ósk Arnardóttir, aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans, í samtali við fréttastofu. Tæplega níutíu var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í vikunni vegna skipulagsbreytinga. Umfangsmiklar breytingar voru gerðar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs og taka breytingarnar gildi 1. september. Sigrún Ósk segir ótta hafa vaknað meðal starfsfólksins um leið og fréttist af uppsögnunum. Hálftíma fjarfundur án spurninga Yfirmönnum Sigrúnar Óskar í frístundamiðstöð hverfisins var sagt upp í vikunni. „Við missum þetta stoðkerfi sem við höfum sem voru frístundamiðstöðvarnar sem voru okkar nærstuðningur,“ segir hún. Í skoðanagreininni segir hún að frístundamiðstöðin sé sá vettvangur þar sem starfsmennirnir koma saman með hagsmuni hverfisins í huga og deila þekkingu, reynslu og hæfileikum. Þá hafi deildarstjórarnir alltaf verið til staðar til að aðstoða við þungu eða alvarlegu málin. „Við vinnum stór samstarfsverkefni saman, stundum á vettvangi frístundaheimilanna eða félagsmiðstöðvanna eingöngu en líka vinnum við ýmis verkefni þvert á frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar. Við deilum líka með okkur mannauði, höfum haft hjá okkur hæfileikaríkt fólk sem getur unnið sérhæfð verkefni og flakkað með þau á milli frístundaheimila og félagsmiðstöðva, svo dæmi séu tekin,“ skrifar hún. Illa hafi verið staðið að upplýsingaflæðinu í kjölfar uppsagnanna. Starfsfólkið var boðað á hálftíma fjarfund til að kynna nýtt skipurit. Ekki hafi verið í boði að spyrja spurninga eða ræða málin. Býst við aukinni ábyrgð og álagi Sigrún segir að enn eigi eftir að finna út úr alls kyns praktískum málum líkt og hvert eigi að senda nýja ráðningarsamninga og hver sjái um að auglýsa eftir nýju starfsfólki. Hún sjái fram á að næsti yfirmaður hennar, forstöðumaður frístundaheimilisins, þurfi að taka á sig aukna ábyrgð og þá sömuleiðis hún sjálf. „Það verður minni viðvera hjá henni á gólfinu með börnunum og þá meira álag á mig að verkstýra,“ segir Sigrún. Um hundrað börn eru skráð í frístundaheimilinu og er gert ráð fyrir einum starfsmanni á tólf til sextán börn. Hún segir það óskandi ef hægt væri að ráða nýja starfsmenn til að deila álaginu en það sé þó ólíklegt þar sem borgaryfirvöld boðuðu niðurskurð. „Verkefni þessa fólks hverfa ekki, þau rúlla áfram, þeim þarf að sinna og líklega mun stór hluti þeirra falla á forstöðufólk sem þar með hefur enn minni tíma á gólfinu með börnunum og ungmennunum. Það segir mér enginn að á endanum bitni þetta ekki á börnunum og ungmennunum og þjónustan skerðist að einhverju leyti,“ skrifaði Sigrún. Börnin og ungmennin neðar en Excel-skjalið Sigrún segist áhyggjufull yfir því að bakslag sé fram undan í frístundastarfi borgarinnar. „Ég hef áhyggjur af því að við munum ekki geta þjónustað krakkana okkar með sama hætti og áður. Reykjavíkurborg hefur verið leiðandi í frístundastarfi á landsvísu sem eðlilegt er enda höfuðborgin okkar,“ skrifar hún. Þá spyr hún hvort það sé ásættanlegt að börnin tapi svo að Excel-skjalið líti betur út.
Reykjavík Borgarstjórn Frístund barna Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Sjá meira