Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar 27. ágúst 2026 21:02 Það er ótrúlegt hvað heimsendir getur verið lengi á leiðinni á Íslandi. Árið 1993 stóð þjóðin frammi fyrir EES-samningnum. Þá vantaði ekki varnaðarorðin. Fullveldið var í hættu. Auðlindirnar voru í hættu. Fiskimiðin voru í hættu. Atvinnan var í hættu. Páll Pétursson, bóndinn frá Höllustöðum í Blöndudal, þingmaður Framsóknarflokksins og síðar ráðherra, kallaði EES „vondan samning, óhagstæðan og hættulegan“ og sagði hann mundu færa Íslendingum „ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi“. Þetta var ekki Facebook-færsla. Þetta sagði hann á Alþingi. Guðni Ágústsson, síðar ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, var í sama pólitíska liði. Stefán Guðmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gekk sömuleiðis hart fram gegn EES og varaði meðal annars við afleiðingum fyrir fiskveiðihagsmuni Íslands. Og svo er Steingrímur J. Sigfússon. Þá Alþýðubandalagsmaður, síðar stofnandi og formaður Vinstri grænna. Rúmum þrjátíu árum síðar er ágætt að líta yfir sviðið. Hvar er auðnuleysið? Hvar er fátæktin sem EES átti að færa okkur? Hver tók fiskimiðin? Og hvar nákvæmlega týndum við Íslandi? Við erum enn hér. Með lýðveldið. Með fiskinn. Með auðlindirnar. Og meira að segja með Framsóknarflokkinn. Sumt virðist þola Evrópusamstarf betur en verstu spár gerðu ráð fyrir. En nú er gamla platan komin aftur á fóninn. Aftur er fullveldið í hættu. Aftur eru auðlindirnar í hættu. Aftur er fiskurinn í hættu. Og aftur birtast stjórnmálamenn sem telja sig betur til þess fallna en þjóðina sjálfa að ákveða hversu langt hún megi ganga í að kanna samband sitt við Evrópu. Þar verður Steingrímur J. sérstaklega áhugaverður. Maður getur verið á móti Evrópusambandinu alla ævi. Það er fullkomlega lögmæt stjórnmálaskoðun. En hvað varð um vinstri manninn sem treystir fólkinu? Við þekkjum söguna frá Icesave. Steingrímur sat þá sem fjármálaráðherra og barðist fyrir samningaleið ríkisstjórnarinnar. Þjóðin fékk síðan að segja sitt. Og hún sagði nei. Tvisvar. Þetta hefði mátt kenna gamla róttæklingnum einfalda lexíu: þjóð sem fær sjálf að kjósa getur komist að annarri niðurstöðu en stjórnmálamennirnir ætluðu henni. Kannski er það einmitt vandamálið. Þann 29. ágúst er þjóðin ekki að samþykkja inngöngu í Evrópusambandið. Spurningin er hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður að nýju. Já felur ekki í sér endanlega ákvörðun um inngöngu. Hvað er svona hættulegt við að sjá hvað fæst? Ef samningurinn verður vondur segjum við nei. Ef hann verður góður getum við sagt já. Það kallast ekki að afsala sér fullveldi. Það kallast að nota það. Það er nefnilega einkennileg tegund af lýðræði að treysta þjóðinni fullkomlega svo lengi sem tryggt er að hún geri það sem maður sjálfur telur rétt. Annars þarf greinilega að vernda hana fyrir sjálfri sér. Framsóknarflokkurinn á ekki síður skilið að gamla bókhaldið sé opnað. Í áratugi hefur flokkurinn talað sem sérstakur verndari bænda, landsbyggðar og íslenskrar framleiðslu. Guðni Ágústsson hefur verið einn litríkasti talsmaður þeirrar stjórnmálahefðar. En eftir alla þessa vernd má bóndinn spyrja: Hvernig hefur mér vegnað? Skuldsetning, fjármagnskostnaður og erfið afkoma hverfa ekki þótt nógu fallega sé talað um íslenska sveit. Vernd sem aldrei má mæta samkeppni getur líka orðið að búri. Það er auðvelt að segjast verja bóndann fyrir útlendingnum. Erfiðara er að útskýra hvers vegna bóndinn þarf enn að berjast við bankann heima fyrir. En þetta er stærra en Steingrímur J., Guðni Ágústsson eða gömul þingræða. Þetta snýst um aðferðina. Þegar breytingar nálgast er sama handritið dregið fram. Hagsmunir eru klæddir í þjóðbúning. Ótti verður að stjórntæki. Fiskurinn er kallaður til vitnis og fullveldið dregið fram eins og slökkvitæki. Síðan er almenningi sagt að sýna ábyrgð. EES og ESB eru ekki sami hluturinn. Auðvitað eru til málefnaleg rök gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ræðum þau þá. Ekki selja þjóðinni gamla heimsendaspá með nýrri dagsetningu. Páll Pétursson hafði rangt fyrir sér um atvinnuleysið, fátæktina og auðnuleysið sem hann tengdi EES. Það er engin skömm að hafa rangt fyrir sér. Það er verra að læra ekkert af því. Þegar stjórnmálamenn sem hafa varið áratugum í að segja okkur hvað muni gerast ef við opnum dyrnar biðja okkur enn einu sinni að læsa þeim áður en við fáum að sjá hvað er hinum megin, eigum við ekki að lúta höfði af lotningu. Við eigum að skoða ferilskrá spámannanna. Framsókn lifði EES af. Steingrímur J. lifði EES af. Landbúnaðurinn lifði EES af. Sjávarútvegurinn lifði EES af. Og furðulegast af öllu: Ísland lifði EES af. Þann 29. ágúst þarf enginn að kjósa með Evrópusambandinu. En þjóðin má kjósa með sjálfri sér. Hún má krefjast þess að fá niðurstöðu viðræðna og taka síðan ákvörðun sjálf — án þess að gamlir forsjárhyggjumenn standi yfir henni og útskýri hvað hún eigi að óttast. Þeir sögðu okkur einu sinni hvernig EES myndi fara. Við vitum nú hvernig það fór. Áður en við kaupum sama spádóminn aftur, með nýju ártali á umbúðunum, er því ein spurning sem gömlu heimsendaspámennirnir mega gjarnan svara: Hvernig fór síðasti heimsendir? Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Vilhelm Jónsson Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar