Almenningur hafi aldrei átt séns Freyja Þórisdóttir skrifar 27. ágúst 2026 14:38 Farið var yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í Pallborði dagsins. SÝN/Sigurjón Guðni Ólason Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma.
Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir voru viðmælendur í fjórða Pallborði Vísis og sammæltust þau snemma um að umræðan og kosningabaráttan væri tilfinningahlaðin. Almenningur sé að vanda sig „Ég er ekki viss um að röklegir núansar séu að fara að snúa einum einasta manni í þessu,“ sagði Eiríkur en Hulda tók undir þann punkt að fólk taki ákvörðun út frá tilfinningu að miklu leyti. „Fyrir mína parta held ég að almenningur sé að vanda sig, margir fyrir lifandis löngu búnir að ákveða sig,“ sagði Hulda en hún sagði áberandi að fólk væri að velta málinu fyrir sér með eins konar þjóðernishyggju eða -kennd „ekki í neikvæðum merkimiða samt“ til hliðsjónar. Þá sagði Eiríkur umræðuna hafa farið „rækilega út af sporinu“ síðustu daga og væri að hans mati farin að minna á umræðuna í aðdraganda Brexit-kosninganna í Bretlandi árið 2016. „Þetta er farið að minna ískyggilega á hana,“ sagði hann en þau sögðu einnig bæði að atkvæðagreiðslur sem þessar, þar sem aðeins eru tveir valmöguleikar, væru flóknar að miklu leyti og fólk hagi sér öðruvísi í aðdraganda þeirra frekar en í sveitastjórnarkosningum til að mynda. Löngu búin að ákveða sig „Það eru afskaplega fáar sálir sem verið er að keppast um og þetta snýst núna aðallega um að hvetja fólk til að mæta á kjörstað,“ sagði Hulda en ítrekaði að flestir væru búnir að mynda sér skoðun fyrir löngu. Eðli baráttunnar væri að pólarnir væru einungis tveir. Sumir ali jafnvel á upplýsingaóreiðu og að það séu rannsóknir sem bendi til þess að ef fólk sé óákveðið, ruglað í rýminu jafnvel, hallist það frekar að öruggari valkostinum, sem í þessu tilfelli væri að haka við nei í kjörklefanum. Átti almenningur einhvern tímann séns? „Nei, ég held ekki, þetta gat ekki farið öðruvísi en svona í nútímanum,“ svaraði Eiríkur.
Pallborðið Evrópusambandið Stjórnsýsla Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira