„Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ Sindri Sverrisson skrifar 26. ágúst 2026 13:32 Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, í baráttunni gegn FH. Bæði lið spila Evrópuleik í dag. Vísir/Hulda Margrét Eftir gleðina sem fylgdi Evrópuævintýri síðustu leiktíðar ætla Blikakonur sér aftur að gera góða hluti í Evrópubikarnum í ár. Þær mæta Csíkszereda frá Rúmeníu á Kópavogsvelli klukkan 17:30 í dag. Breiðablik og FH spila í Evrópubikarnum í dag, í fyrri umferð undankeppninnar, og eru leikir beggja liða sýndir á Sýn Sport Ísland. FH spilar á útivelli við Apollon Ladies klukkan 15 en Breiðablik á heimavelli við Csíkszereda klukkan 17:30. Eftir tapið sára í vítakeppni gegn Aktobe frá Kasakstan í undankeppni Meistaradeildarinnar í byrjun mánaðarins, og sigur gegn Dinamo Minsk frá Hvíta-Rússlandi í kjölfarið, spilar Breiðablik nú í undankeppni næstbestu Evrópukeppninnar. Andstæðingur dagsins er að mörgu leyti óskrifað blað en um er að ræða tveggja leikja einvígi sem lýkur í Rúmeníu eftir viku. „Ég einfaldlega átta mig ekki á getustiginu en ég held að það sé lykilatriði fyrir okkur að ná í góð úrslit sérstaklega hérna heima. Það getur verið erfitt að spila útileiki á móti svona liðum,“ segir Agla María sem þrátt fyrir langan feril með félagsliði og landsliði hefur ekki glímt við rúmenska mótherja: „Nei, við vorum einmitt að ræða þetta og það er engin okkar sem man eftir að hafa spilað við rúmenska landsliðið. Og fæstar í hópnum, ef einhver, hafa svo mikið sem komið til Rúmeníu. Við rennum því frekar blint í sjóinn.“ Vel meðvituð um hornspyrnuvanda Þó að tapið gegn Aktobe svíði þá hefur Breiðablik átt gott tímabil til þessa, miðað við þær gríðarlegu breytingar sem urðu á liðinu eftir síðustu leiktíð. Í Bestu mörkunum síðasta föstudag var hins vegar bent á að liðið ætti mikið inni hvað varðar föst leikatriði, eftir aðeins þrjú mörk úr 113 hornspyrnum í sumar. „Við eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best. Þetta er ekki bara að koma upp núna. Við vitum þetta og höfum farið yfir þetta, og vonandi fer þetta að detta,“ segir Agla María. „Við höfum í gegnum tíðina skorað heilmikið úr föstum leikatriðum. Það hefur munað litlu í einhver skipti hjá okkur í sumar en við þurfum aðeins að skerpa á hlaupum og hvernig við stillum þessu upp. Við höfum verið að gera það og þurfum að gera enn betur. Við eigum klárlega inni þarna.“ Búa að kærum Evrópuminningum Á síðasta tímabili náði Breiðablik meðal annars að slá út dönsku meistarana í Fortuna Hjörring og komast í 8-liða úrslit Evrópubikarsins, þar sem liðið féll út gegn Häcken frá Svíþjóð sem endaði á að vinna keppnina. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt og Evrópuverkefnin í fyrra voru ótrúlega skemmtileg enda gekk mjög vel hjá okkur. Það er ótrúlega gaman að geta tekið þátt í þessari B-deild, sem Evrópubikarinn er, og bera sig saman við lið úr öðrum deildum frá löndum sem minni líkur voru á að mæta í gamla fyrirkomulaginu,“ segir Agla María. Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira
Breiðablik og FH spila í Evrópubikarnum í dag, í fyrri umferð undankeppninnar, og eru leikir beggja liða sýndir á Sýn Sport Ísland. FH spilar á útivelli við Apollon Ladies klukkan 15 en Breiðablik á heimavelli við Csíkszereda klukkan 17:30. Eftir tapið sára í vítakeppni gegn Aktobe frá Kasakstan í undankeppni Meistaradeildarinnar í byrjun mánaðarins, og sigur gegn Dinamo Minsk frá Hvíta-Rússlandi í kjölfarið, spilar Breiðablik nú í undankeppni næstbestu Evrópukeppninnar. Andstæðingur dagsins er að mörgu leyti óskrifað blað en um er að ræða tveggja leikja einvígi sem lýkur í Rúmeníu eftir viku. „Ég einfaldlega átta mig ekki á getustiginu en ég held að það sé lykilatriði fyrir okkur að ná í góð úrslit sérstaklega hérna heima. Það getur verið erfitt að spila útileiki á móti svona liðum,“ segir Agla María sem þrátt fyrir langan feril með félagsliði og landsliði hefur ekki glímt við rúmenska mótherja: „Nei, við vorum einmitt að ræða þetta og það er engin okkar sem man eftir að hafa spilað við rúmenska landsliðið. Og fæstar í hópnum, ef einhver, hafa svo mikið sem komið til Rúmeníu. Við rennum því frekar blint í sjóinn.“ Vel meðvituð um hornspyrnuvanda Þó að tapið gegn Aktobe svíði þá hefur Breiðablik átt gott tímabil til þessa, miðað við þær gríðarlegu breytingar sem urðu á liðinu eftir síðustu leiktíð. Í Bestu mörkunum síðasta föstudag var hins vegar bent á að liðið ætti mikið inni hvað varðar föst leikatriði, eftir aðeins þrjú mörk úr 113 hornspyrnum í sumar. „Við eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best. Þetta er ekki bara að koma upp núna. Við vitum þetta og höfum farið yfir þetta, og vonandi fer þetta að detta,“ segir Agla María. „Við höfum í gegnum tíðina skorað heilmikið úr föstum leikatriðum. Það hefur munað litlu í einhver skipti hjá okkur í sumar en við þurfum aðeins að skerpa á hlaupum og hvernig við stillum þessu upp. Við höfum verið að gera það og þurfum að gera enn betur. Við eigum klárlega inni þarna.“ Búa að kærum Evrópuminningum Á síðasta tímabili náði Breiðablik meðal annars að slá út dönsku meistarana í Fortuna Hjörring og komast í 8-liða úrslit Evrópubikarsins, þar sem liðið féll út gegn Häcken frá Svíþjóð sem endaði á að vinna keppnina. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt og Evrópuverkefnin í fyrra voru ótrúlega skemmtileg enda gekk mjög vel hjá okkur. Það er ótrúlega gaman að geta tekið þátt í þessari B-deild, sem Evrópubikarinn er, og bera sig saman við lið úr öðrum deildum frá löndum sem minni líkur voru á að mæta í gamla fyrirkomulaginu,“ segir Agla María.
Breiðablik og FH spila í Evrópubikarnum í dag, í fyrri umferð undankeppninnar, og eru leikir beggja liða sýndir á Sýn Sport Ísland. FH spilar á útivelli við Apollon Ladies klukkan 15 en Breiðablik á heimavelli við Csíkszereda klukkan 17:30.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira