Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sindri Sverrisson skrifar 26. ágúst 2026 11:02 Olivia Smith með verðlaunagrip sinn á PFA-verðlaunahátíðinni í gær, þar sem hún var valin besti ungi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar annað árið í röð. Getty/Shane Anthony Sinclair Olivia Smith varð í fyrra fyrsta fótboltakonan sem seld er fyrir eina milljón punda, þegar Arsenal keypti hana af Liverpool. Hún á fjölbreyttan íþróttabakgrunn, meðal annars vegna eineltis sem hún sætti sem barn heima í kanadíska smábænum Whitby.
Það er til marks um þróunina í fótbolta kvenna að eftir heimsmetið sem Arsenal setti með kaupum á Smith í fyrra þá hafa nú þegar fimm leikmenn verið keyptir fyrri hærri upphæð. Það breytir því ekki að hin 22 ára gamla Smith hefur staðið undir verðmiðanum sem og pressunni sem því fylgir að hafa verið komin inn í kanadíska landsliðið aðeins 15 ára gömul. Arsenal keypti Oliviu Smith fyrir eina milljón punda.Getty/Jacques Feeney Smith hefur nú verið valin besti ungi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar tvö ár í röð en hún þakkar foreldrum sínum, föður sem er frá Jamaíku og móður sem er frá Síle og Perú, sem og öfum sínum fyrir að hafa smitað sig af fótboltamenningu frá barnsaldri. Þá hefur það einnig hjálpað henni að hafa æft taekwondo og fimleika, samhliða því að æfa fótbolta með strákum. „Ég var í taekwondo sem barn. Ég var lögð í einelti í skóla svo það var meira hugsað til að hjálpa mér að verjast,“ segir Smith í viðtali við BBC. „Ég var líka í fimleikum. Það hjálpar mér mikið með liðleika. Ég finn að ég er frekar liðug miðað við vöxt, sem hjálpar mikið við að koma í veg fyrir meiðsli. Taekwondo hjálpaði mér mikið með agann og líklega hæfileikann til að taka fastari skot. Ég held að það hafi aðallega verið til að halda mér virkri, frá vandræðum, og bara til gamans. Sem betur fer hjálpaði það mér á fótboltaferlinum,“ sagði Smith.
Enski boltinn Arsenal FC Liverpool FC Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fleiri fréttir Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Sjá meira