Viðskipti erlent

Kanada svarar tollum Banda­ríkja­stjórnar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Það andar verulega köldu milli þeirra Mark Carney forsætisráðherra Kanada og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 
Það andar verulega köldu milli þeirra Mark Carney forsætisráðherra Kanada og Donalds Trump Bandaríkjaforseta.  AP

Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.

Viðræður Bandaríkjastjórnar og Kanada runnu í sandinn um helgina en samninganefndir höfðu átt í hörðum viðræðum við Bandaríkin frá því í júlí þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að leggja fimmtíu prósenta toll á innfluttar kanadískar vörur. 

Trump hafði tímabundið frestað gildistöku boðaðra refsitolla vegna samningaviðræðna og sagði að samningsaðilar væru á lokametrunum við að undirrita samning sem hagnaðist báðum ríkjum.

Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, stöðvaði síðan viðræðurnar á föstudaginn síðastliðinn og sagði að Bandaríkjamenn hefðu beðið um of mikið og boðið of lítið. Í kjölfarið boðaði Trump 50 prósenta toll á ýmsar kanadískar vörur.

François-Philippe Champagne, fjármálaráðherra Kanada, sagði að nýtilkynntir tollar Kanada væru markvisst svar við tollum Bandaríkjastjórnar á kanadískar vörur. Tollar Kanadamanna muni gilda um ýmsar bandarískar vörur, svo sem stál, húsgögn, fatnað og heimilistæki. 

Auk þess greindi hann frá stuðningsáætlun ríkisins til kanadískra fyrirtækja sem kynnu að verða fyrir áhrifum tollaákvörðunar Bandaríkjastjórnar.


Tengdar fréttir

Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Kanada vilja njóta allra þeirra fríðinda sem fylgir því að vera ríki Bandaríkjanna án þess að vera það. Kanadamenn segja þau skilyrði sem Bandaríkin lögðu fram vera óásættanleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×