Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. ágúst 2026 15:08 Kelly McCormick og David Leitch hafa unnið saman að gerð fjölda vinsælla hasarmynda. Eitt áhrifamesta sköpunarteymi samtímahasarmynda, leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick, verða heiðursgestir á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, í ár. Hjónin verða með fyrirlestra og verða viðstödd sýningar hasarmynda sinna, Atomic Blonde og Bullet Train.
RIFF fer í ár fram dagana 24. september til 4. október 2026 og verða þar sýndar fjölmargar kvikmyndir, bæði nýjar og gamlar. Ein af áherslum hátíðarinnar í ár er portúgölsk kvikmyndagerð og verður Pulp Fiction-stjarnan Maria de Madeiros meðal heiðursgesta. Sjá einnig: Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Auk hennar verða hasarmyndahjónin David Leitch og Kelly McCormick heiðruð á hátíðinni en saman hafa þau gert fjölmargar vinsælar myndir sem hafa haft mótandi áhrif á hasarmyndir samtímans. Þar má nefna kvikmyndirnar Atomic Blonde (2017), Deadpool 2 (2018) og Bullet Train (2022). Leitch mun halda masterclass-fyrirlestur á hátíðinni þar sem hann fjallar um feril sinn, allt frá því að starfa sem áhættuleikari og áhættuatriðahönnuður yfir í leikstjórn nokkurra vinsælustu hasarmynda síðustu ára. Úr áhættuleik í leikstjórn og framleiðslu hasarmynda Áður en Leitch settist í leikstjórastólinn starfaði hann í meira en tvo áratugi sem einn eftirsóttasti áhættuleikari áhættuatriðahönnuður kvikmyndaiðnaðarins. Leitch var meðal annars staðgengill Brad Pitt í stórmyndunum Fight Club (1999), Troy (2004) og Mr. & Mrs. Smith (2005) og kom að gerð mynda á borð við Ocean’s Eleven (2001) og The Bourne Ultimatum (2007). Sú reynsla hefur mótað nálgun hans við leikstjórn og gert honum kleift að sviðsetja hasar með óvenjulegri nákvæmni, skýrleika og líkamlegum krafti. Keanu Reeves hefur gert fjölmargar myndir um launmorðingjann John Wick. Leitch stofnaði áhættuatriðafyrirtækið 87Eleven með Chad Stahelski árið 1997, þeir unnu í fjölda ára saman og leikstýrðu saman tímamótahasarmyndinni Jonh Wick (2014) þótt Stahelski hafi einn verið skráður fyrir leikstjórninni. Upp frá því fór Leitch að leikstýra sjálfur. Leitch giftist árið 2014 kvikmyndaframleiðandanum Kelly McCormick og stofnuðu þau saman framleiðslufyrirtækið 87North fimm árum síðar og hafa síðan framleitt hasarmyndir á borð við Nobody (2021), Violent Night (2022) og The Fall Guy (2024). Þá hafa þau unnið saman að mörgum kvikmynda hans og McCormick komið að öllum meginþáttum kvikmyndagerða, frá þróun handrita, fjármögnun og leikaravali til framkvæmdar tökuferla. Koma hjónanna til RIFF gefur íslenskum kvikmyndagerðarmönnum, fagfólki, nemendum og áhugafólki einstakt tækifæri til að kynnast þeirri vinnu sem liggur að baki sumum eftirminnilegustu hasarmyndum síðustu ára, allt frá fyrstu hugmynd og þróun handrits til leikaravals, áhættuatriða, upptöku og endanlegrar sviðsetningar.
RIFF Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira