Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar 24. ágúst 2026 08:18 Íslenskur landbúnaður mun breytast mikið á næstu áratugum, hvort sem Ísland gengur í Evrópusambandið eða ekki. Tæknivæðing, breytt neysla, hækkandi launakostnaður, umhverfiskröfur og aukin alþjóðleg samkeppni munu knýja fram breytingar. Spurningin er því ekki hvort landbúnaðurinn breytist heldur hvernig við viljum að sú þróun verði. Færri og stærri kúabú Þróunin í mjólkurframleiðslu er þegar skýr. Kúabúum fækkar en þau sem eftir standa verða stærri og tæknivæddari. Árið 2024 voru 462 kúabú skráð í skýrsluhaldi og meðalbúið var með um 56 kýr. Mjólkurþjónar og önnur sjálfvirkni hafa gjörbreytt vinnunni á nútímalegum kúabúum. Bóndinn þarf ekki lengur að standa yfir mjöltum tvisvar á dag allan ársins hring. Tæknin gerir stærri bú möguleg með minna vinnuálagi á hverja framleidda einingu og getur gert búskapinn fjölskylduvænni. Þessi þróun mun halda áfram. Stærri mjólkurbú þurfa gott ræktarland, örugga fóðuröflun, þjónustu og góðar samgöngur. Suðurland, Eyjafjörður og Skagafjörður hafa augljósa kosti í því samhengi og nálægð við markaði og vinnslustöðvar skiptir máli. Markmiðið á ekki að vera að varðveita ákveðinn fjölda kúabúa heldur öfluga og hagkvæma íslenska mjólkurframleiðslu. Sauðfjárbúskapurinn stendur frammi fyrir erfiðari spurningum Framleiðsla kindakjöts hefur eðlilega minnkað undanfarin ár en búin eru mörg og smá og afraksturinn lítill. Kindakjöt hefur smám saman misst þá yfirburðastöðu sem það hafði áður með betri samgöngum og aðgangi að fjölbreyttari matvælum. Kostnaðinn sem núverandi fyrirkomulag sauðfjárbeitar leggur á samfélagið og landið er mikill. Lausaganga sauðfjár veldur því að sá sem vill rækta skóg, endurheimta gróður eða verja viðkvæmt land þarf oft sjálfur að girða búféð frá. Girðingar eru dýrar og þurfa stöðugt viðhald. Beit á viðkvæmt hálendið heldur niðri gróðri. Kindakjötsneysla mun í framtíðinni minnka. Sauðfjárbúum mætti fækka og þau stækka þannig að þau væru hagkvæmari einingar. Kjúklingar og svín eru annars konar landbúnaður Kjúklinga- og svínarækt er ólík hefðbundnum íslenskum grasnytjabúskap. Framleiðslan fer að mestu fram innanhúss í stórum tæknivæddum einingum og stór hluti korns og próteinfóðurs er innfluttur. Þetta skiptir máli þegar rætt er um fæðuöryggi. Íslensk svína- og kjúklingabú framleiða vissulega mat hér á landi, en framleiðslan er mjög háð innfluttu fóðri. Fæðuöryggi sem byggist á slíku innflæði er annars eðlis en framleiðsla sem byggir á íslensku graslendi, heyi og öðrum innlendum auðlindum. Það hlýtur einnig að hafa áhrif á mat okkar á því hvaða framleiðslu skattgreiðendur eiga sérstaklega að styðja. Tollvernd er vond leið til stuðnings Íslenskur landbúnaður er varinn fyrir erlendri samkeppni með háum innflutningstollum. Innan Evrópusambandsins ríkir hins vegar frjáls verslun með landbúnaðarvörur milli aðildarríkja, samhliða umfangsmiklum beinum stuðningi við bændur. Það er eðlilegt að Ísland styðji landbúnað, rétt eins og önnur Evrópulönd. En stuðningurinn þarf ekki að felast í því að halda erlendum matvælum frá íslenskum neytendum með tollum og kvótum. Við getum stutt íslenska bændur beint og gegnsætt en jafnframt leyft neytendum að njóta samkeppnishæfara matvælaverðs. Árið 2025 var verðlag matvæla og óáfengra drykkja á Íslandi 56% yfir meðaltali ESB. Árið 2024 var Ísland jafnframt dýrasta landið í samanburði Eurostat þegar sérstaklega voru skoðuð mjólk, ostar og egg. Hátt matvælaverð kemur hlutfallslega verst niður á tekjulágum heimilum og barnafjölskyldum. Það hefur einnig áhrif á ferðaþjónustuna um allt land, því veitingastaðir og gististaðir þurfa að kaupa matvæli á þessu háa verði. Lægra matvælaverð væri því bæði kjaramál heimilanna og samkeppnismál íslenskrar ferðaþjónustu. Samkeppni myndi hraða nauðsynlegri þróun Aukið frelsi í innflutningi myndi vissulega reynast sumum framleiðendum erfitt, en samkeppni knýr einnig fyrirtæki til að fjárfesta, sérhæfa sig, nýta nýja tækni og bæta framleiðni. Búum mun hvort sem er halda áfram að fækka og þau stækka. Sterkari rekstrareiningar geta fjárfest meira í sjálfvirkni, betri húsakosti og afleysingum. Þetta snýst ekki aðeins um hagkvæmni heldur einnig lífsgæði bænda. Tæknivæddari bú með fleiri starfsmönnum og betri afleysingaþjónustu geta gert bændum auðveldara að taka frídaga og sumarleyfi og lifa fjölskyldulífi sem líkist því sem tíðkast í öðrum starfsgreinum. Þá mun nýsköpun vaxa með öflugri einingum. Stuðningurinn myndi ekki hverfa við ESB-aðild ESB-aðild myndi ekki þýða að íslenskir bændur stæðu óstuddir gagnvart evrópskum landbúnaði. Sameiginleg landbúnaðarstefna ESB, CAP, er umfangsmikið stuðningskerfi. Finnland er sérstaklega áhugavert fordæmi. Þar fær landbúnaður mikinn stuðning bæði frá ESB og finnska ríkinu vegna norðlægrar legu, stutts ræktunartíma og erfiðra náttúruskilyrða. Framleiðslutengdur stuðningur og greiðslur vegna náttúrulegra takmarkana eru mikilvægir þættir kerfisins. Sambærileg rök ættu augljóslega við um Ísland og yrðu mikilvæg í aðildarsamningum. Meginbreytingin væri því ekki að stuðningur við íslenskan landbúnað hyrfi heldur að hann yrði í auknum mæli greiddur beint og gegnsætt, í stað þess að neytendur greiddu hluta hans með hærra matvælaverði vegna tollverndar. Íslenskur landbúnaður hefur raunverulega styrkleika: hreint vatn, mikið graslendi og góð skilyrði til mjólkur- og grasnytjaframleiðslu á ýmsum svæðum. Þar eigum við að byggja upp sterkan landbúnað. Við eigum hins vegar ekki að gera það að markmiði að framleiða allar landbúnaðarvörur innanlands hvað sem það kostar. Landbúnaður framtíðarinnar verður tæknivæddari, búin færri og stærri og landnýting markvissari. Við getum áfram stutt íslenska bændur og byggð í landinu en jafnframt leyft neytendum að njóta meiri samkeppni og lægra matvælaverðs. Við eigum að stuðla að góðri þróun fyrir bændur, stuðla að skynsamlegri landnýtingu og lækka matarverð hvort sem við förum í Evrópusambandið eða ekki. Höfundur er viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar