„Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Árni Sæberg skrifar 21. ágúst 2026 11:33 Reykjavíkurflugvöllur fer ekki fet í bráð. Vísir/Vilhelm Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar, sem heimila meðal annars uppsetningu allt að þrjátíu metra hás masturs. „Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð,“ segir í bókun meirihlutans.
Í fundargerð fundar umhverfis- og skipulagsráðs á miðvikudag segir að í breytingunni sem felist að skilgreind sé ný lóð, Nauthólsvegur 64-66, þar sem flugstjórnarmiðstöðin og spennistöð standa í dag. Auk þess sé skilgreind lóð á reit Nauthólsvegar 56-60, Nauthólsvegur 58E. Áður skilgreindir byggingarreitir innan nýrrar lóðar 64-66 haldist óbreyttir og heildarbyggingarmagn á reitnum/nýrri lóð haldist óbreytt, bæði ofan- og neðanjarðar. Setja má upp flugvallarbúnað Reitarafmörkun fyrir Nauthólsveg 54 minnki til samræmis og nýtingarhlutföll breytist vegna breyttra lóða/reitastærða. Á nýrri lóð að Nauthólsvegi nr. 58E verði heimilt að setja upp flugvallarbúnað þar með talið mastur allt að 30 metra hátt. Nýja lóðin verður númer 58 E.Reykjavíkurborg Tillagan hafi verið í auglýsingu frá 2. október 2025 til og með 13. nóvember 2025. Umsögn hafi borist frá Minjastofnun Íslands, Veitum, og skipulagsfulltrúa. Tillagan hafi verið samþykkt með breytingum sem hafi komið fram í umsögn skipulagsfulltrúar. Skipulagið þurfi að taka mið af því að flugvöllurinn fari ekki í bráð Í bókun meirihlutans segir að hann samþykki fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Breytingin feli meðal annars í sér að skilgreindar séu lóðir fyrir starfsemi og búnað sem tengist áframhaldandi rekstri flugvallarins. „Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð, þar sem enn hefur ekki verið fundinn viðeigandi staðsetning á nýjum flugvelli. Því er mikilvægt að skipulag svæðisins taki mið af þessari staðreynd og skapi nauðsynlegar forsendur fyrir öruggum og hagkvæmum rekstri flugvallarins á meðan svo er. Jafnframt er mikilvægt að nauðsynleg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað með eðlilegum hætti.“
Reykjavíkurflugvöllur Reykjavík Borgarstjórn Flug Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira