Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar 20. ágúst 2026 07:47 Heimurinn er gjörbreyttur síðan Trump komst aftur til valda, síðan Pútín hóf stríð í Evrópu, síðan Netanyahu komst upp með að stunda þjóðarmorð og að gabba Trump í annað stríð í miðausturlöndum. Við lifum í dag í heimi stórvelda sem flest virða ekki lengur fullveldi eða landamæri eða grundvallar mannréttind, ekki einu sinni sinna eigin borgara. Við lifum í heimi hinna sterku sem gera það sem þeir komast upp með. Hinna sterku sem meira að segja hafa komist upp með að vernda Epstein-stéttina. Til að vernda fullveldi sitt í heimi hinna sterku þarf lítið ríki eins og Ísland sterkt samband við önnur ríki með sameiginleg gildi. Varnarbandalög og ríkjasamstarf um mannréttindi og alþjóðalög. En í dag eru Bandaríkin að grafa undan þessum grundvallar hagsmunum Íslands. Grafa undan NATO og hóta að innlima NATO ríki. Grafa undan Alþjóða Stríðsglæpadómstólnum. Grafa undan samstarfi Evrópuríkja, m.a. með stuðningi JD Vance varaforseta Bandaríkjanna við Orban fyrrum forseta Ungverjalands, sem sjálfur ítrekað gróf undan frelsi, fjölmiðlum og grunnréttindum borgaranna, og sjálfu réttarríkinu og dómstólum landsins. Og þegar Trump hótaði ítrekað frændríki okkar Grænlandi innlimun, sagði þekktasti forystumaður Nei-hugveitunnar herra Ólaf Ragnar Grímsson í viðtali í Silfrinu (sjá mínútu 18:00), að Ísland ætti að bíða með yfirlýsingar um stuðning við frændur okkar, og fara frekar að rækta samband við MAGA þingmenn í Bandaríkjunum eins og Lindsey Graham sem hefur lengi farið fyrir necon stríðshaukum Repúblikana, og hugveitum eins og The Heritage Foundation sem í hálfa öld hefur stutt málstað Repúblikana með fjárstuðningi milljarðamæringa. Og síðast en ekki síst að rækta tengsl við tækni og gervigreindar ólígarkana, eins og Elon Musk (sjá mínútu 20:51). Á sama tíma og milljarðamæringarnir og aðrir óligarkar eru löngu búnir að kaupa stjórnmálin í Bandaríkjunum og sá ríkasti þeirra Elon Musk er byrjaður að reyna að stýra stjórnmálum í Evrópu, þá er utanríkisráðuneyti Trumps að veita 3 milljónum dollara til að styrkja MAGA hugveitur í Evrópu. Íslenskir stjórnmálamenn Miðflokksins virðast vera farnir að tengja sig inn í þetta hagsmunanet sem Ólafur Ragnar hvatti til í Silfrinu. Nei-hugveitan mokar nú fé í að hræða Íslendinga að alls ekki Sjá hvort við getum skapað okkur farsælli framtíð með þátttöku í sambandi fullvalda Evrópuríkja, sem hafa sameiginleg gildi og við, í stað þess að leifa ólígörkunum að færa Ísland endanlega undir áhrif Bandaríkjanna og nær MAGA hugmyndafræði. En hvað eru óligarkarnir hræddir um að við munum Sjá með því að kjósa Já? Að við munum sjá möguleika á framtíð þar sem hvorki íslensku óligarkarnir né þeir bandarísku stjórni landinu? Sjá framtíð í sambandi ríkja sem betur endurspeglar gildi Íslendinga um vernd grunnréttinda fólks, vernd lýðræðis og réttarríkisins, og betur verndar réttindi neytenda bæði úti í matvörubúð og á húsnæðismarkaði? Nei-hreyfingin er líka búin að reyna að hræða mig með alls konar áróðri sem engin veit hver borgar fyrir - en það sem ég ætla að kjósa 29. ágúst er tækifæri til að Sjá hvað er raunverulega í boði, í stað þess að gefa innlendum og erlendum ólígörkum eftir framtíð þjóðarinnar eftir nokkrar vikur af áróðri. Ég ætla að kjósa að Já til að Sjá, með aðildarviðræðum á næstu árum hvað er satt og hvað logið. Ég ætla að kjósa að kaupa mér tíma til að taka upplýsta afstöðu um framtíð Íslands, framtíð fullveldisins og framtíð barnanna minna. Þau eiga það skilið að ég kjósi Já til að Sjá! Höfundur er fyrrverandi Alþingismaður og fyrrum Nei-sinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Þór Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar