Tijjani Reijnders farinn Stefán Árni Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 23:15 Reijnders í bikarleik á síðasta tímabili. Vísir/getty Hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders hefur gengið frá félagaskiptum frá Manchester City til sádi-arabíska félagsins Al-Qadsiah. Kaupverðið er sagt vera 52 milljónir punda, eða því sem samsvarar 8,6 milljörðum íslenskra króna.
Reijnders, sem er 28 ára, gekk til liðs við City frá AC Milan fyrir 46,5 milljónir punda síðasta sumar. Hann náði þó ekki að festa sig í sessi hjá enska stórliðinu og yfirgefur félagið eftir aðeins eitt tímabil. Hann lék alls 50 leiki fyrir City á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk. Hann varð bikarmeistari með liðinu eftir sigur í enska bikarnum og deildabikarnum á síðasta tímabili. Reijnders var einnig lykilmaður í hollenska landsliðinu á HM 2026 og byrjaði alla þrjá leiki liðsins í riðlakeppninni. Hann sat hins vegar allan leikinn á varamannabekknum þegar Holland féll úr keppni gegn Marokkó í 32-liða úrslitum. „Ég hef verið ótrúlega heppinn að fá að spila fyrir Manchester City og naut hverrar einustu mínútu hér,“ segir Reijnders þegar hann kvaddi félagið. „Frá því ég kom hingað gerðu allir hjá félaginu, leikmenn, þjálfarar og starfsfólk, mér auðvelt fyrir að líða vel og vera hluti af Manchester City-fjölskyldunni.“ Hann þakkaði einnig stuðningsmönnum City sérstaklega fyrir hlýjar móttökur og stuðninginn sem hann og fjölskylda hans fengu á meðan hann var hjá félaginu. Nýr kafli í Sádi-Arabíu Reijnders er sagður hafa skrifað undir fimm ára samning við Al-Qadsiah, sem Brendan Rodgers stýrir. Rodgers hefur áður stýrt meðal annars Liverpool og Celtic. Nýr stjóri Manchester City, Enzo Maresca, valdi Reijnders ekki í leikmannahópinn fyrir Samfélagsskjöldinn gegn Arsenal á sunnudaginn. City tapaði þeim leik 3-0. Reijnders er enn einn miðjumaðurinn sem yfirgefur Manchester City í sumar. Rodri gekk til liðs við Barcelona fyrir 65 milljónir punda og Bernardo Silva yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út og samdi við Real Madrid án greiðslu.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira