Myndi taka kúlu fyrir Infantino Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. ágúst 2026 13:01 Véron Mosengo-Omba fagnar í stúkunni á leik Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó og Englands á HM í sumar. Við hlið hans er Gianni Infantino, forseti FIFA. getty/Eva Marie Uzcategui Véron Mosengo-Omba, einn helsti stuðningsmaður Giannis Infantino, forseta FIFA, segir að hann myndi taka kúlu fyrir hann eins og hann orðaði það. Mosengo-Omba telur að Infantino njóti enn víðtæks stuðnings meðal aðildarríkja FIFA.
Hart hefur verið sótt að Infantino undanfarnar vikur vegna umdeildra hugmynda hans um að selja hlut í mótum FIFA, eins og heimsmeistaramótinu, til einkaaðila. Eftir víðtæka andstöðu féll Infantino frá fyrirætlunum sínum og nú reynir hann allt hvað hann getur til að halda völdum hjá FIFA. Enn hefur þó enginn boðið sig fram gegn Infantino en fresturinn til þess rennur út um miðjan nóvember. Þótt knattspyrnusambönd nokkurra landa og heimsálfa hafi gagnrýnt Infantino opinberlega telur Mosengo-Omba að hann njóti enn stuðnings hins valdamikla allsherjarþings FIFA. Mosengo-Omba og Infantino hafa þekkst lengi, eða frá háskólaárum þeirra í Sviss. Mosengo-Omba starfaði sem yfirmaður aðildarsambanda FIFA og var framkvæmdastjóri afríska knattspyrnusambandsins en er nú forseti kongóska knattspyrnusambandsins. Hann var ekki hrifinn af hugmyndum Infantinos um að einkavæða innviði FIFA en styður samt enn þétt við bakið á sínum gamla vini og telur að flest aðildarríki FIFA geri það. „Flest samböndin styðja hann. Spyrjið bara þingið. Ég sendi ekki stuðningsbréf því ég var ekki sammála því hvernig verkefnið var unnið. Núna reynir fólk að ráðast á Gianni en ég er tilbúinn að taka kúlu fyrir hann,“ sagði Mosengo-Omba. „Gianni kom með tillögu. Knattspyrnusamband Evrópu er að selja Meistaradeildina og EM; þetta eru sjálfstæð fyrirtæki. Hann var að gera það sama og kom með svipaða tillögu en hefur dregið hana til baka. Svo hvert er vandamálið? Það sem mér líkaði ekki og þar sem ég tel að Gianni hafi orðið á, var hvernig þetta var gert. Vegna þess að hættan var sú að það hefði getað leitt til þess að mörg einkafyrirtæki hefðu skipulagt heimsmeistaramótið. Það er það sem ég við þetta að athuga.“ Mosengo-Omba segir að ef til vill væri farsælla að bjóða álfusamböndunum að kaupa hlut í HM til auka tekjur fyrir aðildarríki sín. „Þú gætir til dæmis sagt að álfusamband geti keypt tuttugu prósent. Við gætum gert það. Það er mín hugmynd og ég gæti kannski komið með tillöguna á næsta þingi. Vegna þess að ég þarf peninga til að þróa fótboltann í Kongó. Fólkið hér hefur ekkert. Við myndum fá tuttugu milljónir dollara á ári ef þetta gerðist og það gæti haft mikil áhrif í mínu landi,“ sagði Mosengo-Omba. Næsta ársþing FIFA verður haldið í Rabat í Marokkó í mars 2027.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn Afturelding - FH | Rafmagnaður leikur í Mosfellsbæ Handbolti Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Manchester United - Sabah FK | Mæta nýliðunum eftir þriggja ára fjarveru Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Sjá meira