Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Birgir Olgeirsson skrifar 18. ágúst 2026 14:59 Fólkið hafði ítrekað komið við sögu lögreglu undanfarnar vikur, meðal annars vegna dvalarleyfa og gruns um þjófnaði. Vilhelm Þremur erlendum ríkisborgurum, sem hafa ítrekað komið við sögu lögreglu undanfarnar vikur, hefur verið vísað úr landi og þeim bannað að koma aftur til Íslands næstu sjö árin.
Lögreglan á Norðurlandi vestra stöðvaði bifreið fólksins á suðurleið á fimmtudagskvöld vegna gruns um hraðakstur. Ökumaðurinn framvísaði ökuskírteini en ekki reyndist unnt að bera kennsl á hina tvo þar sem þeir kváðust ekki vera með skilríki. Við nánari athugun kom í ljós að fólkið hafði meðal annars komið við sögu vegna dvalarleyfa og gruns um þjófnaði. Það var handtekið og bifreiðin færð á lögreglustöðina á Blönduósi. Við leit í bifreiðinni fannst talsvert magn af ætluðu þýfi, þar á meðal peningar, skartgripir og ýmsir aðrir munir. Fólkinu var í kjölfarið birt ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og sjö ára endurkomubann. Það verður í gæsluvarðhaldi þar til hægt verður að flytja það til heimalands síns. Héraðsdómur Norðurlands vestra úrskurðaði fólkið upphaflega í allt að þriggja vikna gæslu. Landsréttur staðfesti úrskurðinn í dag en stytti gæsluvarðhaldið í tvær vikur.
Lögreglumál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira