Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar 14. ágúst 2026 11:32 Fullveldi Íslands er meginatriði í málflutningi Nei-sinna í umræðum um ESB. Þeir tala mikið um að halda í fullveldið og gæta þess að það glatist ekki. Oft er þá lítill greinarmunur gerður á framsali fullveldis og afsali þess. En þetta tvennt er þó alls ekki það sama. Ef við afsölum okkur fullveldi þá missum réttinn til að hafa áhrif. En framsal fullveldis er forsenda þess að mannlegt samfélag geti yfirhöfuð verið til. Til að útskýra þetta skulum við hugsa okkur að við séum bændafjölskylda sem sest að á Íslandi á landnámstímanum. Ekkert ríkisvald eða yfirvald af neinu tagi er þá til í landinu en við sláum okkur samt niður í skjólsælum dal og hefjum búsakap. Enginn er yfir okkur settur, við erum algerlega fullvalda. Þetta er svolítið eins og draumur Bjarts í Sumarhúsum. En við verðum þá líka að standa á eigin fótum. Ef húsið brennur eða ræningjar hirða kýrnar þá getur draumurinn breyst í martröð. Vissulega ráðum við okkur alveg sjálf en við getum þá heldur ekki vænst þess að neinn hjálpi okkur ef á bjátar. Í raun er fullveldi okkar háð því að við getum komist af án hjálpar eða samstarfs. Og við þurfum að geta varið hendur okkar. Stundum er sagt að þjóð sem ekki geti varið sig geti heldur ekki verið fullvalda. Hvað gerum við þá? Jú, við leitum samstarfs við granna okkar, ættingja og vini. Þannig búum við til hóp fólks sem er betur fær um að tryggja öryggi og aðstoð ef á þarf að halda. Þessi hópur — við skulum kalla hann goðorð — getur síðan stuðlað að samstarfi af ýmsu tagi sem bætir hag allra, eins og með sameiginlegri stjórn bithaga eða brunatryggingum. Slíkt samstarf felur vissulega í sér framsal á fullveldi heimilisins en það er ekki afsal á meðan við höfum enn áhrif á sameiginlegar ákvarðanir. Framsal á fullveldi er þannig forsenda þess að goðorðið verði til og almennt má segja að það gildi um öll samfélög — fólk verður að framselja hluta af fullveldi sínu til stærri hóps sem er fær um að verja það gegn ytri og innri ógnum. Án þess verður ekkert samfélag til. En þegar heimili okkar framselur hluta af sínu fullveldi má segja að fullveldi okkar styrkist því þá erum við ekki lengur eins ofurseld umhverfi og hættum sem við höfum enga stjórn á. Nú getum við tekið ákvarðanir um búskap, viðskipti, ferðalög og samskipti sem áður voru of áhættusamar. Á móti þurfum við að lúta reglum samfélagsins — eins og að stilla okkur um að stela og myrða. Við ráðum okkur aldrei alveg sjálf. Frelsi okkar takmarkast af kringumstæðum, lögum, valdahlutföllum og frelsi annarra. Það fylgir því að búa í samfélagi. Mestu skiptir að við höfum áhrif á þær stofnanir sem takmarka frelsi okkar, hvort sem það er fjölskyldan, sveitarfélagið, þjóðríkið eða samtök þjóða. En við þurfum alltaf að framselja hluta af fullveldi okkar. Höfundur er sagnfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar