Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 09:30 Eftir rúmar tvær vikur gefst þjóðinni tækifæri til að ákveða hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ekki til að ákveða hvort Ísland gangi inn þar inn, heldur til að velja samning fram yfir samningsleysi, upplýsingar fram yfir upplýsingaóreiðu. Rétt eins og ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lofaði Íslendingum fyrir rúmum áratug. Við þurfum ekki að útkljá öll álitamál um kosti og galla ESB á næstu tveimur vikum. Við þurfum aðeins að vilja vita meira um tækifæri Íslands til að segja já þann 29. ágúst. Höfnum ekki samningi sem enginn hefur séð – skoðum fyrst og ákveðum svo Við kaupum ekki íbúð án þess að skoða hana. Við tökum ekki nýju starfi án þess að vita hver launin eru. Samt er þjóðin nú hvött til að hafna ESB áður en samningur liggur fyrir. Sumir tala jafnvel eins og niðurstaðan sé þegar gefin. En niðurstaðan ræðst aðeins við samningsborðið þar sem markmiðið liggur skýrt fyrir. Markmiðið er að tryggja hagsmuni fólks og fyrirtækja á Íslandi og standa vörð um sérstöðu Íslands. Gleymum því ekki að margt hefur breyst síðan Ísland var síðast í aðildarviðræðum við ESB á árunum 2009-2013. Öryggismál vega þyngra, orkumál hafa tekið á sig nýja mynd og mikilvægi norðurslóða hefur aukist verulega. Evrópa sjálf hefur breyst og forgangsröðun Evrópusambandsins með. Það er mat ríkisstjórnarinnar að nú sé meira svigrúm en áður til að taka tillit til sérstöðu Íslands. En við þurfum ekki að spá fyrir um niðurstöðuna fyrir fram. Skoðum fyrst. Ákveðum svo. Ríkisstjórnin treystir þjóðinni til að taka ákvörðun Umræðan um tækifæri Íslands innan ESB mun harðna enn frekar á næstu dögum. Það er eðlilegt og hollt. Stórar ákvarðanir eiga að vera ræddar, ólík sjónarmið eiga að takast á og erfiðum spurningum á að svara. Stjórnvöld munu hlusta á efasemdir já- og nei-sinna, svara spurningum af hreinskilni og tryggja að kjósendur hafi sem bestar upplýsingar til að taka upplýsta ákvörðun um hvort klára eigi viðræður við ESB. Því ríkisstjórnin treystir þjóðinni til að ákveða hvaða framtíð hún vill. Íslendingar hafa áður staðið frammi fyrir stórum spurningum um stöðu smáþjóðar í breyttum heimi. Í hvert sinn höfum við spurt spurninga og vegið kosti og galla. Við höfum ekki óttast það að vita meira heldur haft sjálfstraust til að spyrja, hlusta og kanna. Hvað sem stjórnarandstaðan segir þjóðinni þá snýst atkvæðagreiðslan 29. ágúst ekki um aðild Íslands að ESB. Hún snýst um hvort við viljum halda áfram viðræðum, kanna hvað Íslandi stendur raunverulega til boða og taka síðan ákvörðun með allar upplýsingar á borðinu. Þegar samningur liggur fyrir fær þjóðin aftur að segja sitt. Þá geta Íslendingar sagt já eða nei við aðild á grundvelli þess sem raunverulega liggur fyrir. Það að segja já nú bindur engan til að segja já síðar. Það tryggir aðeins að við fáum tækifæri til að vita meira áður en við ákveðum. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar