Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Jón Þór Stefánsson skrifar 13. ágúst 2026 17:23 Kistuberar voru: Sigurjón Sighvatsson, Jónas R. Jónsson, Egill Eðvarðsson, Óttar Felix Hauksson, Karl B. Herman Gunnarsson, Zakarías Herman Gunnarsson, Unnar Helgi Daníelsson, og Jakob Frímann Magnússon. Vísir/Anton Brink Gunnar Þórðarson, einn mesti brautryðjandi íslenskrar tónlistar og eitt helsta tónskáld þjóðarinnar, var jarðsunginn í Hallgrímskirkju í dag. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson jarðsöng og einvalalið tónlistarfólks kom fram.
Gunnar lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 29. júlí síðastliðinn, 81 árs að aldri. Eftir hann liggur langur lagalisti sem inniheldur mörg ástsælustu lög þjóðarinnar. Nokkur þeirra voru flutt í útförinni í dag: Alex Óli Jónsson söng Hafið, Pálmi Gunnarsson söng annars vegar Kvölda tekur, og hins vegar Þitt fyrsta bros, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng Ástarsælu og Vetrarsól, Dísella Lárusdóttir söng lög Gunnars við ljóð Hallgríms Péturssonar Allt eins og blómstrið eina og Ég lifi í Jesú nafni. Þá söng sonur Gunnars, Zakarías Herman Gunnarsson, Vesturgötu. Hljómsveit, strengjasveit og Sönghópur Fríkirkjunnar léku undir og sungu með. Gunnar hafði glímt við erfið veikindi á síðustu árum. Í minningarorðum sínum minntist Zakarías sonur Gunnars á að í gegnum veikindin hafi faðir hans aldrei misst húmorinn. Zakarías Herman Gunnarsson fór með minningarorð um föður sinn. Einnig söng hann Vesturgötu.Vísir/Anton Brink Karl B. Herman Gunnarsson, sonur Gunnars fór með minningarorð um föður sinn.Vísir/Anton Brink „Hvað einkenndi hans persónu?“ spurði séra Hjörtur í athöfninni, og svaraði um leið: „Hógværð, hann var hlýr í viðmóti, yfirvegun, sterk jarðtenging, en um leið flaug hann himinhátt í tónlistarsköpun sinni. Hann gat vissulega verið fastur fyrir og fylginn sér, en bjó um leið yfir þeirri mýkt og hárfínu næmni sem einkenna laglínusmíðar hans.“ Þá sagði Hjörtur fallega sögu af því þegar Gunnar, sem þá var orðinn veikur, vildi heimsækja aftur á æskuslóðirnar, og fara á Ljósanótt. „Í fyrra vildi hann komast á Ljósanótt í Keflavík. Það ætlaði hann sér þrátt fyrir andmæli og aðvaranir lækna og aðstandenda. Með ættlægri þrjósku stollta strandamannsins frá Hólmavík, þá tókst honum það.“ Einvalalið tónlistarfólks kom fram í athöfninni.Vísir/Anton Brink Ólafur Haukur Símonarsson rithöfundur hélt fallega ræðu um Gunnar.Vísir/Anton Brink Egill Eðvarðsson las minningarorð um vin sinn, hann Gunna.Vísir/Anton Brink Hallgrímskirkja var þétt setin.Vísir/Anton Brink Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng Vetrarsól og Ástarsælu.Vísir/Anton Brink Pálmi Gunnarsson söng Kvölda tekur, og Þitt fyrsta bros.Vísir/Anton Brink Hinn ungi Alex Óli Jónsson söng Hafið.Vísir/Anton Brink Séra Hjörtur Magni Jóhannsson sá um athöfnina.Vísir/Anton Brink Útsendingu frá útförinni í heild sinni má sjá hér:
Hallgrímskirkja Tímamót Tónlist Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira