Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2026 14:19 Hafdís Huld Björnsdóttir, nýr bæjarstjóri Fjallabyggðar, með Jóhanni K. Jóhannssyni, forseta bæjarstjórnarinnar frá S-listanum. Fjallabyggð Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Fjallabyggðar greiddu atkvæði gegn ráðningu Hafdísar Huldar Björnsdóttur sem bæjarstjóri. Þeir töldu sig hvorki hafa fullnægjandi gögn um valið né breytingar á ráðningarsamningi bæjarstjóra.
Ráðning Hafdísar Huldar var staðfest með fjórum atkvæðum fulltrúa H- og S-lista á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Hún tekur við starfinu um mánaðamótin. Tuttugu og tveir sóttu um stöðuna en af þeim var átta boðið í viðtal. Þremur þeira var boðið í seinna viðtal. Hafdís Huld var sögð hafa skorað hæst í hæfnisviðmiði. Þórir Hákonarson, fráfarandi bæjarstjóri, sóttist eftir að verða endurráðinn. Þegar ráðningin var lögð fyrir á fundinum bókuðu þrír fulltrúa D-lista sjálfstæðismann að þeir teldu sér ekki unnt að samþykkja ráðninguna á grunni þeirra gagna sem lægju fyrir. „Þrátt fyrir ítrekaða beiðni hafa ekki verið lagðar fram rekjanlegar forsendur fyrir vali átta umsækjenda úr tuttugu og síðar þriggja umsækjenda í lokaumferð,“ segir í bókun þeirra. Þá sögðust þeir telja að drög að ráðningasamningi Hafdísar Huldar fælu í sér veikari og óskýrari ákvæði um starfsskyldur bæjarstjóra, önnur störf og eigin atvinnurekstur en giltu áður. Fullnægjandi skýringar hefðu ekki verið veittar á þeim breytingum. Lögðu sjálfstæðismennirnir þó áherslu á að afstaða þeirra fæli ekki í sér dóm um hæfni Hafdísar Huldar. Telja samninginn hagstæðari fyrir Fjallabyggð en við fyrri bæjarstjóra Fulltrúar meirihlutans bókuðu að þeir hörmuðu afstöðu minnihlutans. Þeir teldu ráðningarferlið faglegt og að upplýsingum hefði verið miðlað til oddvita minnihlutans reglulega. Þá lægi fyrir rökstuðningur ráðgjafarfyrirtækisins Intellecta fyrir ráðningu Hafísar Huldar. „Sá ráðningarsamningur sem hér liggur fyrir er að okkar mati mun hagstæðari fyrir sveitarfélagið Fjallabyggð en síðasti samningur sem hér er mikið til samanburðar. Auk þess teljum við þennan ráðningarsamning taka vel á þeim ákvæðum sem skipta máli varðandi hlutverk og skyldur bæjarstjóra,“ segir í bókun meirihlutans.
Fjallabyggð Sveitarstjórnarmál Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira