Útför Gunnars Þórðarsonar Jón Þór Stefánsson skrifar 13. ágúst 2026 14:00 Úftör Gunnars Þórðarsonar verður frá Hallgrímskirkju. Hér má sjá sálmaskrána. Vísir/Anton Brink Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður Íslandssögunnar, verður borinn til grafar í dag. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju og hefst klukkan 15.
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni í spilaranum hér fyrir neðan. Gunnar fæddist þann 4. janúar 1945 á Hólmavík, og lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 29. júlí síðastliðinn. Hér má sjá upptöku af útförinni. Ungur fluttist Gunnar til Keflavíkur, bæjar sem meðal annars þökk sé honum hefur verið kallaður Bítlabærinn, en þar hófst ferill hans. Þekktastur Gunnar fyrir aðkomu sína að hljómsveitunum Hljómum, Trúbroti, Ríó tríói, og Ðe lónlí blú bojs. Hann markaði djúp spor í íslenskri tónlistarsögu, en á meðal þekktustu laga Gunnars eru: Bláu augun þín, Þú og ég, Ástarsæla, Heim í Búðardal, Þitt fyrsta bros, Gaggó Vest, Harðsnúna Hanna, Við Reykjavíkurtjörn, Himinn og jörð, og Vetrarsól. Tónsmíðar Gunnars voru þó ekki einungis í dægurlagatónlist, heldur kom hann víðar við. Til að mynda samdi hann óperuna Ragnheiði. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson mun jarðsyngja frá Hallgrímskirkju á eftir. Þá mun einvalalið tónlistarfólks koma fram. Pálmi Gunnarsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Dísella Lárusdóttir munu syngja, sem og hinn tólf ára gamli Alex Óli Jónsson, og svo Zakarías Herman Gunnarsson, sonur Gunnars. Þá mun hljómsveit, strengjasveit, og Sönghópur Fríkirkjunnar jafnframt spila í útförinni. Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur og Egill Eðvarðsson listamaður munu lesa minningarorð. Það munu synir Gunnars, Zakarías og Karl B. Herman Gunnarsson líka gera.
Tónlist Menning Tímamót Hallgrímskirkja Tengdar fréttir Gunnar Þórðarson er látinn Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn 81 árs að aldri. Gunnar hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og meðal annars barist við Parkinson-veiki. 30. júlí 2026 09:09 Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður og lagahöfundur sem Ísland hefur alið. Gunnar var hlédrægur og leyfði tónlistinni að tala fyrir sig. Samkvæmt vinum og fjölskyldu var hann rólyndismaður sem fékk sínu fram, ískaldur töffari og vinnuhestur sem mætti fyrstur til vinnu og fór síðastur heim. 31. júlí 2026 10:14 Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira
Gunnar Þórðarson er látinn Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn 81 árs að aldri. Gunnar hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og meðal annars barist við Parkinson-veiki. 30. júlí 2026 09:09
Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður og lagahöfundur sem Ísland hefur alið. Gunnar var hlédrægur og leyfði tónlistinni að tala fyrir sig. Samkvæmt vinum og fjölskyldu var hann rólyndismaður sem fékk sínu fram, ískaldur töffari og vinnuhestur sem mætti fyrstur til vinnu og fór síðastur heim. 31. júlí 2026 10:14