Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar 13. ágúst 2026 08:32 Einn hópur fer hátt í Evrópuumræðunni þessa dagana: Já-til-að-sjá. Talsmenn hans vilja síður ræða kosti og galla ESB-aðildar núna og segja að fyrst þurfi að „sjá samninginn“. En hvað nákvæmlega er það sem á eftir að koma í ljós? Stærsti hluti pakkans hefur legið galopinn á borðinu árum saman. Pakkinn er galopinn Grunngildi ESB ættu vart að standa Íslandi fyrir þrifum. Þar má nefna lýðræði, mannréttindi, markaðshagkerfi, neytendavernd og umhverfisvernd. Stóru álitamálin eru önnur: sjálfsákvörðunarréttur þjóðarinnar og yfirráð yfir auðlindum hennar. Við aðild myndi Ísland framselja hluta fullveldisheimilda sinna til stofnana ESB. Landið gæti ekki lengur gert eigin fríverslunarsamninga og þyrfti að taka þátt í sameiginlegri sjávarútvegs-, landbúnaðar- og viðskiptastefnu sambandsins. Þá fylgir aðild skuldbinding um upptöku evru þegar tilskilin skilyrði hafa verið uppfyllt. Á móti kæmi full aðild að innri markaði ESB, þátttaka í ákvörðunum sambandsins og aðgangur að ýmsum sjóðum. Ísland greiddi jafnframt í sameiginlega sjóði ESB en fengi styrki til baka. Margt af því sem helst snertir daglegt efnahagslíf okkar – frjálst flæði vöru, þjónustu, fólks og fjármagns – höfum við hins vegar þegar í gegnum EES. Hvað á samningurinn að leiða í ljós? Þá vaknar stóra spurningin: Hvað vilja Já-sjá-sinnar sjá í lokasamningi sem við vitum ekki nú þegar? Varla er það neytendavernd eða aukinn aðgangur að innri markaðnum, því þar kemur EES sterkt inn. Ekki heldur hvort vextir, verðlag eða samkeppni þróist með ákveðnum hætti; slíkt ræðst ekki í aðildarviðræðum. Eftir standa helst evran og hugsanlegar sérlausnir, til dæmis í sjávarútvegi. En skuldbindingin um upptöku evru er þegar þekkt og varanlegar undanþágur frá grundvallarreglum ESB eru almennt vandfengnar. Ef vonin er því evran ásamt einhverri ótilgreindri undanþágu vaknar einföld spurning: Er sú von svo mikils virði að réttlætanlegt sé að gambla með fullveldisheimildir þjóðarinnar og fjöregg hennar – yfirráðin yfir auðlindum landsins? Og sé evran sjálf töfralausnin, hvers vegna hafa þá ekki öll ESB-ríkin tekið hana upp? Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Einn hópur fer hátt í Evrópuumræðunni þessa dagana: Já-til-að-sjá. Talsmenn hans vilja síður ræða kosti og galla ESB-aðildar núna og segja að fyrst þurfi að „sjá samninginn“. En hvað nákvæmlega er það sem á eftir að koma í ljós? Stærsti hluti pakkans hefur legið galopinn á borðinu árum saman. Pakkinn er galopinn Grunngildi ESB ættu vart að standa Íslandi fyrir þrifum. Þar má nefna lýðræði, mannréttindi, markaðshagkerfi, neytendavernd og umhverfisvernd. Stóru álitamálin eru önnur: sjálfsákvörðunarréttur þjóðarinnar og yfirráð yfir auðlindum hennar. Við aðild myndi Ísland framselja hluta fullveldisheimilda sinna til stofnana ESB. Landið gæti ekki lengur gert eigin fríverslunarsamninga og þyrfti að taka þátt í sameiginlegri sjávarútvegs-, landbúnaðar- og viðskiptastefnu sambandsins. Þá fylgir aðild skuldbinding um upptöku evru þegar tilskilin skilyrði hafa verið uppfyllt. Á móti kæmi full aðild að innri markaði ESB, þátttaka í ákvörðunum sambandsins og aðgangur að ýmsum sjóðum. Ísland greiddi jafnframt í sameiginlega sjóði ESB en fengi styrki til baka. Margt af því sem helst snertir daglegt efnahagslíf okkar – frjálst flæði vöru, þjónustu, fólks og fjármagns – höfum við hins vegar þegar í gegnum EES. Hvað á samningurinn að leiða í ljós? Þá vaknar stóra spurningin: Hvað vilja Já-sjá-sinnar sjá í lokasamningi sem við vitum ekki nú þegar? Varla er það neytendavernd eða aukinn aðgangur að innri markaðnum, því þar kemur EES sterkt inn. Ekki heldur hvort vextir, verðlag eða samkeppni þróist með ákveðnum hætti; slíkt ræðst ekki í aðildarviðræðum. Eftir standa helst evran og hugsanlegar sérlausnir, til dæmis í sjávarútvegi. En skuldbindingin um upptöku evru er þegar þekkt og varanlegar undanþágur frá grundvallarreglum ESB eru almennt vandfengnar. Ef vonin er því evran ásamt einhverri ótilgreindri undanþágu vaknar einföld spurning: Er sú von svo mikils virði að réttlætanlegt sé að gambla með fullveldisheimildir þjóðarinnar og fjöregg hennar – yfirráðin yfir auðlindum landsins? Og sé evran sjálf töfralausnin, hvers vegna hafa þá ekki öll ESB-ríkin tekið hana upp? Höfundur er framhaldsskólakennari.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar