Sport

Hilmar sá sjöundi besti í Evrópu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hilmar Örn Jónsson náði sínu besta kasti í öðru kasti sínu og það dugði honum í hóp sjö bestu sleggjukastara Evrópu.
Hilmar Örn Jónsson náði sínu besta kasti í öðru kasti sínu og það dugði honum í hóp sjö bestu sleggjukastara Evrópu. EPA/TOLGA AKMEN

Hilmar Örn Jónsson keppti í kvöld í úrslitum í sleggjukasti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í Englandi og náði sjöunda sæti.

Hilmar kastaði lengst 77,26 metra en Íslandsmet hans frá því í mars er 78,03 metrar.

Hilmar var því nálægt Íslandsmetinu sínu og kastaði lengra en í undankeppninni þar sem hann kastaði lengst 76,63 metra.

Hilmar kastaði 74,38 metra í fyrsta kasti í úrslitunum en hækkaði sig síðan úr níunda sæti upp í það sjötta með því að kasta 77,26 í öðru kasti sínu.

Hilmar gerði ógilt í þriðja kastinu sínu en þetta góða annað kast var nóg til að koma honum í hóp þeirra átta sem fengu þrjú köst til viðbótar.

Hilmar kastaði 76,89 metra í fjórða kasti og náði ekki að lengja sig þar. Hann var áfram í sjöunda sætinu.

Hilmar gerði ógilt í tveimur síðustu köstunum sínum en hélt sjöunda sætinu.

Ungverjinn Bence Halász varð Evrópumeistari með kast upp á 84,25 metra. Þjóðverjinn Merlin Hummel fékk silfrið og Úkraínumaðurinn Mykhaylo Kokhan fékk bronsverðlaun.

Kokhan fékk reyndar gult spjald í kvöld fyrir óíþróttamannslega framkomu en stóð uppi með bronsverðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×