Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Lovísa Arnardóttir skrifar 13. ágúst 2026 13:02 Sara og Vikar hafa skipulagt hátíðina saman en Vikar rekur Leyni á Akureyri. Aðsend Tónlistarhátíðin Kveldúlfur verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram.
Fram koma: Hjálmar, Benni Hemm Hemm, Bent, Inspector Spacetime, Saint Pete, Lúpína, RAKEL, Salóme Katrín, Kusk & Óviti, Pitenz og Amor Vincit Omnia. Uppsetning á skiltinu í vikunni. Aðsend Sara Bjarnason skipuleggjandi hátíðarinnar segir hátíðarsvæðið verða í portinu á milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Kraftlyftingafélags Akureyrar (KFA). „Þar mætir hrár iðnaðarsjarminn Eyjafirðinum fagra. Hjalteyri hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem öflugur vettvangur lista og menningar og býður upp á kjöraðstæður fyrir tónlistarhátíð,“ segir Sara en hún skipuleggur hátíðina í samstarfi við barinn Leyni á Akureyri. Hér má sjá hvar sviðið verður uppsett. Aðsend Á svæðinu verða matarvagnar, opnar vinnustofur listafólks, opinn pottur og svo verður hægt að fá sér húðflúr. „Það sem er öðruvísi núna er að það má gista á svæðinu, þótt það sé ekki tjaldsvæði per sei, með aðgangi að rafmagni það er að segja, þá er klósettaðstaða og ef fólk getur einhvers staðar komið sér fyrir þá er það í boði. Þó ekki á einkalóðum, auðvitað,“ segir Sara. Skemmtun fyrir börn líka á Hjalteyri. Aðsend Selst yfirleitt vel við hurð Hún segir miðasölu ganga vel en á von á því að nokkuð seljist við hurð. Hún sjái þó á miðasölunni að einhverjir virðist ætla að koma úr bænum. Það eigi að vera gott veður og stemningin verði frábær. Hún segir það mikið ferli að setja upp svona hátíð og hún hafi lært mikið af því að halda hana í fyrsta skipti í fyrra. Það sé gaman að sjá ávöxt erfiðisins stækka og dafna með þessum hætti. Vinnustofa Vikars verður opin fyrir gesti á hátíðinni. Aðsend „Það skiptir okkur máli að gera þetta í samtali við byggðina og fá þau með okkur. Við gerum þetta ekki án þeirra og viljum stækka í eðlilegu tempói,“ segir hún og að það sé skemmtilegt fyrir gesti að fá að skoða vinnurými listamanna sem eru með vinnustofu á Hjalteyri. „Það er mikill fjöldi listafólks sem heldur til hér og gestir fá tækifæri til að líta inn á vinnustofur þess og sjá hvers konar menning þrífst þarna á þessu litla svæði. Þetta er svo áreynslulaus upplifun, það er allt þarna,“ segir hún og að auk þess sé Hjalteyri aðeins steinsnar frá Akureyri. Hátíðarsvæðið á Hjalteyri. Aðsend Júníus Meyvant áritaði plötur á hátíðinni í fyrra. Aðsend
Hörgársveit Akureyri Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Næsta laugardag verður í fyrsta sinn haldin tónlistarhátíðin Kveldúlfur á Hjalteyri í Eyjafirði. Hátíðin er lítil í þetta fyrsta sinn og er nefnd eftir síldarverksmiðjunni á staðnum sem var rekin þar um árabil. 10. júlí 2025 20:02 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Næsta laugardag verður í fyrsta sinn haldin tónlistarhátíðin Kveldúlfur á Hjalteyri í Eyjafirði. Hátíðin er lítil í þetta fyrsta sinn og er nefnd eftir síldarverksmiðjunni á staðnum sem var rekin þar um árabil. 10. júlí 2025 20:02