UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 18:02 Aleksander Čeferin, forseti UEFA og Gianni Infantino, forseti FIFA. Það er orðið ljóst að þeir vinna ekki saman í næstu framtíð og ef Infantino heldur áfram mun UEFA mögulega yfirgefa FIFA. Getty/Paolo Bruno Mikil alvara virðist vera komin í samtal nokkurra álfusambanda í fótboltaheiminum um hvernig framtíðin muni líta út ef þau ákveða að sniðganga keppnir Alþjóðaknattspyrnusambandsins.
UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, CONCACAF, Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku og Karíbahafsins, og AFC, Knattspyrnusamband Asíu, hafa þegar hafið viðræður um að halda sín eigin alþjóðlegu mót ef til sniðgöngu á FIFA kemur. Þetta kemur meðal annars fram í The Telegraph og hjá Bloomberg. Álfusamböndin vilja nýjan forseta en Gianni Infantino virðist ekki tilbúinn að segja af sér þrátt fyrir mikla gagnrýni úr öllum áttum og upplausn í fótboltasamfélaginu með áframhaldandi veru hans á valdastól. The Telegraph greinir frá því að UEFA, CONCACAF og AFC vilji tryggja leikmönnum aðra keppnismöguleika ef til sniðgöngu á HM kemur. Bloomberg leggur áherslu á að áætlanirnar séu enn á frumstigi. UEFA, AFC og CONCACAF sendu fyrr í dag frá sér harða gagnrýni á forystu FIFA í sameiginlegu opnu bréfi til „fótboltafjölskyldunnar“. Tilefnið er auðvitað deilan um áform FIFA um að selja utanaðkomandi fjárfestum eignarhlut í heimsmeistaramótunum. Samböndin þrjú skrifa að deilan snúist ekki um peninga, heldur um „heiðarleika leiksins og heiðarleika þeirra sem eru kjörnir til að stjórna honum“. FIFA hefur sjálft viðurkennt að mistök hafi verið gerð í ferlinu. UEFA, AFC og CONCACAF telja hins vegar að FIFA meðhöndli málið ranglega sem samskiptabrest. „Það var ekki viðurkennt að tillagan sjálf væri í grundvallaratriðum röng. Það er enn engin viðurkenning á því að tilraunin til að selja eignarhlut í heimsmeistaramóti FIFA hafi verið alvarlegur dómgreindarbrestur, ekki bara málsmeðferðarvilla, heldur grundvallartrúnaðarbrot gagnvart einmitt þeim stofnunum sem FIFA er til fyrir að þjóna,“ segir í bréfinu. Samböndin gagnrýna meðal annars að tillagan hafi verið lögð fram með stuttum fresti og án þess sem þau telja vera nægjanlegt samráð við aðildarlöndin. Samböndin krefjast þess einnig að málið verði rannsakað af fullkomlega óháðum þriðja aðila. Þau telja að stjórn FIFA eigi ekki að koma að þeirri yfirferð. Bréfið er meðal annars undirritað af Aleksander Čeferin, forseta UEFA, Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseta AFC, og Victor Montagliani, forseta CONCACAF.
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi AFC, Concacaf og UEFA senda opið bréf til aðdáenda fótbolta þar sem verið er að sýna samstöðu gegn vinnubrögðum og tillögum Gianni Infantino, forseta FIFA, að selja heimsmeistaramótið til einkafjárfesta. 10. ágúst 2026 12:31 Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu FIFA gagnrýnir harðlega það sem sambandið segir vera skipulagða aðför með það að markmiði að grafa undan sambandinu og forseta þess Giani Infantino. 9. ágúst 2026 10:03 Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Gianni Infantino, forseti FIFA, hafnar fullyrðingum Daily Telegraph þess efnis að UEFA hafi greitt þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu hans er Infantino starfaði hjá UEFA sem aðalritari. UEFA staðfestir að greiðsla hafi verið innt af hendi. 8. ágúst 2026 09:19 Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vegna ástandsins við landamæri Spánar og Marokkó hefur spænska knattspyrnufélagið Barcelona hætt við æfingaleik sem átti að vera haldinn í Marokkó í næstu viku. 7. ágúst 2026 16:32 Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Norska knattspyrnusambandið, með formann sinn Lise Klaveness í fararbroddi, krefst þess að Gianni Infantino segi af sér sem forseti FIFA. Um leið minnir Lise, Sepp Blatter forvera Infantino í embætti á hans fortíð en Blatter stakk upp á því að Lise yrði næsti forseti sambandsins. 7. ágúst 2026 12:32 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira
Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi AFC, Concacaf og UEFA senda opið bréf til aðdáenda fótbolta þar sem verið er að sýna samstöðu gegn vinnubrögðum og tillögum Gianni Infantino, forseta FIFA, að selja heimsmeistaramótið til einkafjárfesta. 10. ágúst 2026 12:31
Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu FIFA gagnrýnir harðlega það sem sambandið segir vera skipulagða aðför með það að markmiði að grafa undan sambandinu og forseta þess Giani Infantino. 9. ágúst 2026 10:03
Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Gianni Infantino, forseti FIFA, hafnar fullyrðingum Daily Telegraph þess efnis að UEFA hafi greitt þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu hans er Infantino starfaði hjá UEFA sem aðalritari. UEFA staðfestir að greiðsla hafi verið innt af hendi. 8. ágúst 2026 09:19
Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vegna ástandsins við landamæri Spánar og Marokkó hefur spænska knattspyrnufélagið Barcelona hætt við æfingaleik sem átti að vera haldinn í Marokkó í næstu viku. 7. ágúst 2026 16:32
Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Norska knattspyrnusambandið, með formann sinn Lise Klaveness í fararbroddi, krefst þess að Gianni Infantino segi af sér sem forseti FIFA. Um leið minnir Lise, Sepp Blatter forvera Infantino í embætti á hans fortíð en Blatter stakk upp á því að Lise yrði næsti forseti sambandsins. 7. ágúst 2026 12:32