Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 21:03 Mbeumo hefur skorað þrjú mörk í tveimur leikjum gegn sterkum andstæðingum. Stu Forster/Getty Images Manchester United og Paris Saint-Germain skildu jöfn 1-1 í æfingaleik sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð í dag. Fjölmörg ensk lið voru í eldlínunni víða um álfuna.
Bryan Mbeumo virðist í stuði með United þessa dagana en hann skoraði jöfnunarmarkið fyrir United eftir að Ibrahim Mbaye, sem hefur verið orðaður við bæði Liverpool og United, hafði komið PSG yfir snemma leiks. Bruno Fernandes og Youri Tielemans spiluðu báðir sinn fyrsta leik eftir HM-frí og sá síðarnefndi sinn fyrsta leik í treyju United. Mason Mount fór hins vegar meiddur af velli í dag. Joao Pedro skoraði tvö marka Chelsea og Moises Caicedo það þriðja í 3-0 sigri á AC Milan í Indónesíu í morgun. Leeds vann 2-0 sigur á RB Leipzig á heimavellinum Elland Road á Englandi þar sem Dominic Calvert-Lewin og Lukas Nmecha skoruðu sitthvort markið. Brighton vann sterkan 3-0 sigur á ítalska stórveldinu Roma á Amex-vellinum á suðurströnd Englands. Georginio Rutter skoraði eitt en Svíinn Yasin Ayari tvö marka liðsins. Georginio Rutter's GOLAZO gives Brighton the lead in their pre-season friendly vs. Roma 👏 pic.twitter.com/EEg8ga4PFF— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) August 8, 2026 Nýliðar Ipswich Town unnu 3-0 sigur á Rayo Vallecano á Portman Road. Bakvörðurinn Leif David skoraði tvö mörk á fyrsta korterinu og nýi Brassinn í liði Ipswich, Emersonn skoraði þriðja markið. Hákon Rafn Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Brentford sem vann 4-2 sigur á Rennes í Frakklandi síðdegis. Igor Thiago, Ethan Pinnock, Dango Outtara og Callum Wilson skoruðu eitt mark hver. Everton tapaði þá 3-1 fyrir Stuttgart í Þýskalandi. Nikolas Nartey og Ramon Hendriks komu Stuttgart í 2-0. Thierno Barry minnkaði muninn fyrir Everton af vítapunktinum áður en Badredine Bouanani innsiglaði 3-1 sigur heimamanna. Nýliðar Franks Lampard í Coventry unnu 3-1 sigur á Espanyol frá Spáni eftir að hafa verið 1-0 undir í hléi. Í síðari hálfleik skoruðu Tatsuhiro Sakamoto, Josh Eccles og Ellis Simms eitt mark hver til að tryggja sigurinn. Nottingham Forest tók þátt í sérkennilegu þríhyrningsmóti með Barcelona og Udinese í Udine á Ítalíu. Þar spiluðu öll liðin þrjú innbyrðis í kvöld, einn hálfleik gegn hverju liði. Forest tapaði 45 mínútna leik sínum við Udinese 1-0 þar sem Oumar Solet skoraði sigurmarkið og þá tapaði liðið einnig fyrir Barcelona 1-0. Raphinha skoraði mark Börsunga. Bournemouth sótti Real Betis heim til Sevilla á Spáni. Alex Scott, leikmaður Bournemouth, og Antony, leikmaður Betis, fengu rautt spjald hvor eftir að þeim lenti saman undir lok fyrri hálfleiks. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Marcus Tavarnier og Evanilson skoruðu mörk Bournemouth en Juan Hernández og Pablo Fornals mörk Betis. Newcastle spilaði sá sinn fyrsta leik undir stjórn Þjóðverjans Matthias Jaissle. Liðið var 1-0 undir gegn Valencia á Mestalla-vellinum í hálfleik en José Gaya fékk rautt spjald seint í fyrri hálfleik. Yoane Wissa skoraði tvö mörk fyrir Newcastle er liðið lék með ellefu menn gegn tíu eftir hlé og 2-1 sigur staðreynd.
Manchester United Chelsea FC Leeds United Brighton & Hove Albion Ipswich Town FC Brentford FC Everton FC Coventry City FC Nottingham Forest AFC Bournemouth Newcastle United Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fleiri fréttir Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Sjá meira