Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 18:07 Ég hef verið í atvinnurekstri í tæp 40 ár og upplifað sveiflur og áföll í íslensku efnahagslífi, sem virðast endurtaka sig sí og æ! En iðulega hefur mér verið sagt að lausn á þessum vandræðum liggi í "okkar höndum" og að við þurfum einfaldlega "að sýna aga", sem ég ætla ekki að gera lítið úr. Ég veit að rekstur míns fyrirtækis mun seint skipta þjóðarbúið miklu máli en við höfum reynt að vanda okkur og m.a. tekist að vera fyrirmyndarfyrirtæki frá upphafi mælinga hjá Creditinfo - eitt rúmlega 50 fyrirtækja, þannig að eitthvað höfum við gert rétt og vart verið agalaus með öllu. Ég hef á undanförnum áratugum upplifað fjölmargar ríkisstjórnir með allrahanda samsetningum og verið hluti af forystusveit atvinnulífsins, sem gert hefur hvern kjarasamninginn eftir annan og örugglega trúað því í hvert sinn að nú tækist okkur að sýna þennan umdeilda aga. En það hefur staðið á þessum efnahagslega stöðuleika enda hef ég fyrir margt löngu komist að þeirri skoðun að það kerfi - sem við erum að vinna í - sé hannað fyrir suma og sé í raun ótrúlega ósanngjarnt. Það er einfaldlega ógjörningur að reikna með að lítil fyrirtæki og þorri heimila landsins blómstri í því umhverfi sem þeim er gert að búa við. Það er erfitt að sjá rekstrarleg tækifæri í mörgum hlutum þegar fjármagna þarf þau á 14% vöxtum. Ég hef því oft öfundað þau fyrirtæki sem lifa að mestu utan krónuhagkerfisins enda áhyggjur af íþyngjandi vaxtagreiðslum vart að halda fyrir þeim vöku. Það skal því viðurkennast í þessum pistli að það hefur hent mig í draumi að sjá mig alsæla í þessum fámenna, útvalda hópi - en vaknað upp við raunveruleik okkar hinna þegar birti af degi. En draumurinn um að lifa með alvöru gjaldmiðli lifir hins vegar góðu lífi. Ekki eingöngu fyrir litlu fyrirtækin í landinu heldur ekki síður fyrir mestu verðmætin í okkar lífi, sem eru börn okkar og barnabörn. Sjálf hélt ég að í einfeldni minni að mín kynslóð yrði sú kynslóð sem myndi koma hlutunum í lag - en við brugðumst. Og það er því þyngra en tárum taki ef við skoðum ekki allar leiðir til að létta afkomendum okkar róðurinn og auka öryggi þeirra. Ég ætla hiklaust að segja JÁ í ágúst enda mín skoðun að það sé frábært að eiga íslenskar krónur en hörmung að skulda þær! Íslenska krónan er ósanngjörn og hún mismunar fyrirtækjum og heimilum. Við eigum svo miklu betra skilið en það sem okkur er boðið upp á í dag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Kristmannsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun