Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar 4. ágúst 2026 10:01 Margir þekkja lagið Hotel California með Eagles. Það fjallar um að vera lokkaður inn í heim sem virðist heillandi en reynist síðan gildra. Þekktasta ljóðlínan er „You can check out any time you like, but you can never leave.“ Á íslensku mætti þýða línuna sem „Þú getur kvatt hvenær sem þú vilt – en þú sleppur aldrei héðan.“ Þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst snýst einmitt um slíkan veruleika á grunni tálsýnar. Margir líta svo á að já þýði aðeins að kanna hvað Íslandi standi til boða í viðræðum við Evrópusambandið. En samkvæmt stækkunarbæklingi ESB hefst þá umfangsmikið aðlögunarferli þar sem íslensk löggjöf og stjórnsýsla eru samræmd regluverki sambandsins, kafla fyrir kafla, á tugum málefnasviða. Þetta er ekki hefðbundið samningaferli þar sem báðir aðilar semja um reglurnar, heldur fyrst og fremst ferli þar sem umsóknarríki aðlagast regluverki ESB. Já er skuldbinding Verkefnið er gríðarlegt. Ísland þyrfti ekki aðeins að taka upp megnið af regluverki sambandsins heldur einnig að sýna fram á að stjórnvöld og stofnanir geti innleitt og framfylgt því með skilvirkum hætti. Þess vegna er erfitt að líta á já sem einfalt leyfi til að „sjá hvað býðst“. Samlíking við kauptilboð á íbúð á því vel við. Þegar tilboð hefur verið samþykkt taka við skuldbindingar og umfangsmikið ferli sem ekki verður snúið til baka án afleiðinga. Á sama hátt er ólíklegt að Evrópusambandið líti á það með velþóknun ef Ísland hafnar lokasamningi eftir margra ára aðlögunarvinnu og verulegan kostnað. Já í ágúst er því í reynd meira en samþykki fyrir áframhaldandi viðræðum. Það er samþykki fyrir því að hefja aðildarferli sem gerir ráð fyrir að Ísland stefni að fullri aðild. Þess vegna ættu kjósendur aðeins að segja já ef þeir eru sannfærðir um að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan. Höfundur er framhaldsskólakennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Margir þekkja lagið Hotel California með Eagles. Það fjallar um að vera lokkaður inn í heim sem virðist heillandi en reynist síðan gildra. Þekktasta ljóðlínan er „You can check out any time you like, but you can never leave.“ Á íslensku mætti þýða línuna sem „Þú getur kvatt hvenær sem þú vilt – en þú sleppur aldrei héðan.“ Þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst snýst einmitt um slíkan veruleika á grunni tálsýnar. Margir líta svo á að já þýði aðeins að kanna hvað Íslandi standi til boða í viðræðum við Evrópusambandið. En samkvæmt stækkunarbæklingi ESB hefst þá umfangsmikið aðlögunarferli þar sem íslensk löggjöf og stjórnsýsla eru samræmd regluverki sambandsins, kafla fyrir kafla, á tugum málefnasviða. Þetta er ekki hefðbundið samningaferli þar sem báðir aðilar semja um reglurnar, heldur fyrst og fremst ferli þar sem umsóknarríki aðlagast regluverki ESB. Já er skuldbinding Verkefnið er gríðarlegt. Ísland þyrfti ekki aðeins að taka upp megnið af regluverki sambandsins heldur einnig að sýna fram á að stjórnvöld og stofnanir geti innleitt og framfylgt því með skilvirkum hætti. Þess vegna er erfitt að líta á já sem einfalt leyfi til að „sjá hvað býðst“. Samlíking við kauptilboð á íbúð á því vel við. Þegar tilboð hefur verið samþykkt taka við skuldbindingar og umfangsmikið ferli sem ekki verður snúið til baka án afleiðinga. Á sama hátt er ólíklegt að Evrópusambandið líti á það með velþóknun ef Ísland hafnar lokasamningi eftir margra ára aðlögunarvinnu og verulegan kostnað. Já í ágúst er því í reynd meira en samþykki fyrir áframhaldandi viðræðum. Það er samþykki fyrir því að hefja aðildarferli sem gerir ráð fyrir að Ísland stefni að fullri aðild. Þess vegna ættu kjósendur aðeins að segja já ef þeir eru sannfærðir um að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan. Höfundur er framhaldsskólakennari
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar