Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar 3. ágúst 2026 13:01 Í grein eftir mig sem birtist á Vísi, sunnudaginn 2. ágúst, voru ein ummæli Kristrúnar Frostadóttur ekki höfð rétt eftir. Í grein minni stóð „Kristrún Frostadóttir sagði nýlega í bresku hlaðvarpi að ef þjóðin segði já í lok ágúst tæki við aðildarferli sem „soga myndi allt súrefni úr stjórnkerfinu“. Hér var orðinu „allt“ ofaukið. Grunnástæða þessarar meinlegu villu er blanda af fljótfærni og kæruleysi. Ég hafði reitt mig um of á minnið. Engu að síður bað ég gervigreindina um að rifja upp með mér ummælin orðrétt við vinnslu greinarinnar og þá spýtti hún út úr sér þessu orðalagi. Að sjálfsögðu átti ég að baktryggja að það væri nákvæmt, a.m.k. áður en ég sendi greinina til birtingar. Hins vegar breytir orðið „allt“ í víðara samhengi viðtalsins ekki innihaldi eða niðurstöðu greinarinnar því Kristrún viðhafði fleiri orð um aðildarferlið, m.a. þau að „this takes a lot of energy, it takes oxygen out of the governing system..." („þetta útheimtir mikla orku, það sogar súrefni úr stjórnkerfinu“. Enska orðasambandið “takes oxygen out of the governing system” er myndmál og merkir ekki bókstaflega að aðeins örlítið súrefni sé tekið úr kerfinu. Það vísar til þess að tiltekið mál taki mikið rými, athygli og starfsorku frá annarri stjórnsýslu. Þýðingin „sogar súrefnið úr stjórnkerfinu“ fangar þessa merkingu ágætlega, þótt orðið „allt“ geri framsetninguna vissulega afdráttarlausari. Svo má bæta því við að Kristrún ítrekaði umfang umsóknarferilsins enn frekar stuttu síðar í viðtalinu með orðunum „I’m very much aware that this is a huge project for the government.” („Ég átta mig rækilega á því að þetta er gríðarlega stórt verkefni fyrir ríkisstjórnina.“). Svona lýsing getur tæplega átt við könnunarviðræður til að kíkja í pakkann, sem er megin boðskapur greinarinnar. Engu að síður bið ég vitaskuld lesendur greinarinnar og Kristrúnu auðmjúklega afsökunar á þessu gáleysi mínu. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Í grein eftir mig sem birtist á Vísi, sunnudaginn 2. ágúst, voru ein ummæli Kristrúnar Frostadóttur ekki höfð rétt eftir. Í grein minni stóð „Kristrún Frostadóttir sagði nýlega í bresku hlaðvarpi að ef þjóðin segði já í lok ágúst tæki við aðildarferli sem „soga myndi allt súrefni úr stjórnkerfinu“. Hér var orðinu „allt“ ofaukið. Grunnástæða þessarar meinlegu villu er blanda af fljótfærni og kæruleysi. Ég hafði reitt mig um of á minnið. Engu að síður bað ég gervigreindina um að rifja upp með mér ummælin orðrétt við vinnslu greinarinnar og þá spýtti hún út úr sér þessu orðalagi. Að sjálfsögðu átti ég að baktryggja að það væri nákvæmt, a.m.k. áður en ég sendi greinina til birtingar. Hins vegar breytir orðið „allt“ í víðara samhengi viðtalsins ekki innihaldi eða niðurstöðu greinarinnar því Kristrún viðhafði fleiri orð um aðildarferlið, m.a. þau að „this takes a lot of energy, it takes oxygen out of the governing system..." („þetta útheimtir mikla orku, það sogar súrefni úr stjórnkerfinu“. Enska orðasambandið “takes oxygen out of the governing system” er myndmál og merkir ekki bókstaflega að aðeins örlítið súrefni sé tekið úr kerfinu. Það vísar til þess að tiltekið mál taki mikið rými, athygli og starfsorku frá annarri stjórnsýslu. Þýðingin „sogar súrefnið úr stjórnkerfinu“ fangar þessa merkingu ágætlega, þótt orðið „allt“ geri framsetninguna vissulega afdráttarlausari. Svo má bæta því við að Kristrún ítrekaði umfang umsóknarferilsins enn frekar stuttu síðar í viðtalinu með orðunum „I’m very much aware that this is a huge project for the government.” („Ég átta mig rækilega á því að þetta er gríðarlega stórt verkefni fyrir ríkisstjórnina.“). Svona lýsing getur tæplega átt við könnunarviðræður til að kíkja í pakkann, sem er megin boðskapur greinarinnar. Engu að síður bið ég vitaskuld lesendur greinarinnar og Kristrúnu auðmjúklega afsökunar á þessu gáleysi mínu. Höfundur er framhaldsskólakennari.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar