Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar 2. ágúst 2026 09:32 Á seinustu 15-16 árum hefur átt sér stað gríðarlega ör breyting á nálgun Evrópusambandsins í málefnum flóttafólks. Lengi hefur sambandið ekki sýnt áhuga á að gera eitthvað fyrir þennan hóp. Ákveðið var að nota fólk á flótta sem dyggðarskreytingu fyrir sambandið til að sýna hvað það væri gott að taka til sín fólkið sem flúði glundroða og eyðileggingu sem sambandið hefur alltaf stutt við í sinni utanríkisstefnu. Meira var planið ekki. Það virðist ekki hafa verið gerð nein áætlun varðandi móttöku fólksins og innlimun þeirra í samfélög landa innan sambandsins. Í mörgum löndum einangruðust þessir þjóðfélagshópar inn í samfélög sem mynduðust í hverfunum þar sem ríkin komu þeim fyrir. Upp frá þessu spratt tækifærisleysi, þaðan af tilgangsleysi og vonleysi sem skapaði frjóan jarðveg fyrir óreglu. Þetta er í sjálfu sér ekki einstakt, þessar aðstæður skapast almennt í samfélögum okkar í vestræna heiminum því við lifum við ómannvæna efnahagsstjórnun. Þessar aðstæður hefði samt mátt fyrirbyggja ef þessar aðgerðir hefðu verið gerðar með raunverulegum ásetningi að taka á móti nýjum borgurum. Nóg um það. Ákveðið var að eftirliti við strendur Norður-Afríku yrði hætt, en þetta eftirlit fól í sér það að gripið yrði inn í óörugga fólksflutninga áður en þær yrðu háskasamar. Þetta gamla eftirlit var farsælt verkefni, það sást þegar eftirlitið var fært að ströndum Grikklands og fjöldi sem dó á sjóleiðinni skaust upp um mörg þúsund manns. Eftirlit snerist ekki lengur um að grípa inn í áður en aðstæður yrðu hættulegar, eftirlitið snerist nú eingöngu um að halda fólki úti. Við þetta skapast Frontex sem lifir enn í dag í einhverju furðulegu milliástandi sem her án alls löglegs umboðs og án aðhalds, enda hafa þau frjálsar hendur til að lumbra á og beita gasi geng saklausu fólki í leit að betra lífi. Lengi vel þóttist ESB vera á móti níðinu og óréttlætinu sem flóttafólki var beitt í ríkjum eins og Ungverjalandi og Póllandi. Hægt og rólega fóru það samt að láta undan þeim sjónarmiðum sem ríktu þar. Við stöndum núna frammi fyrir því að Evrópusambandið hefur lagt grunninn að fjöldabrottflutningi á fólki í fangabúðir utan ESB-svæðisins, þá líklegast í Norður-Afríku. Það eru engar leiðir til að tryggja að aðstæður þar séu fullnægjandi og öruggar, líklega mun fjöldi deyja við þessar aðstæður. Mig grunar reyndar að sambandinu sé bara alveg sama. Þeim er alveg sama um að fangabúðirnar sem þau vilja reisa fyrir saklaust fólk verði líklegast seinasta stoppið þeirra. Þannig er nefnilega mál með vexti að þetta mikla samband líkt þenkjandi lýðræðisríkja hafa nú sett grænan stimpil á fjöldabrottflutning fólks í það sem mætti líkja við útrýmingarbúðir. Þetta er nákvæmlega það sama og Bandaríkin gerðu við innflytjendurna sem þau sendu til El Salvador. Þar hvarf fólk bara. Það sama er að fara að gerast innan ESB. Ég hikaði við að segja þetta áður en það er eiginlega erfitt að neita því lengur, stefna ESB í málefnum flóttafólks er mjög einföld og snýst bara um að drepa brúna fólkið sem slapp úr stríðunum sem utanríkisstefnan skapaði. Þetta er eitt af því sem má finna í þessum blessaða pakka, samsekt við eitthvað sem yrði eitt mesta voðaverk 21. aldar. Eru milljónir mannslífa ekki metin til nema 25% ódýrari kjúklingaréttar? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar