Níu handteknir vegna vopnalagabrots á Akureyri Eiður Þór Árnason skrifar 2. ágúst 2026 09:01 Mikill fjöldi var á Akureyrarvelli í gærkvöld. Vísir/Viktor Freyr Níu voru handteknir og einn þeirra vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir vegna fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu.
Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Vopnalagabrotið er til rannsóknar en samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra á Akureyri var einungis um einn hníf að ræða. „Það var vopnalagabrot þarna á hátíðarsvæðinu á Akureyrarvelli. Í aðgerðinni sjálfri eru níu alls handteknir. Einn af þeim er svo tekinn í frekari skoðun og endar á því að við þurfum að vista hann vegna málsins. Hinum átta var bara sleppt á staðnum,“ segir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri. Lögregla hafi fengið upplýsingar sem sneru að ákveðnum hópi sem metnar hafi verið áreiðanlegar. „Við höfðum þarna vitneskju um að það væri hugsanlegt eggvopn í þessum hópi. Í gærkvöldi er gríðarlegur fjöldi fólks kominn saman á fjölskylduhátíð og þá voru aðstæður þannig að við ákváðum að fara í aðgerðir til að sannreyna þessar upplýsingar og þessi rannsókn leiddi til þess að það fannst eggvopn á einum þeirra sem er svo handtekinn vegna málsins.“ Hinir hafi verið látnir lausir. Mikill erill er sagður hafa verið hjá embættinu síðastliðinn sólarhring en fjöldi fólks er á Akureyri þar sem bæjarhátíðin Ein með öllu fer fram um verslunarmannahelgina. Líkamsárás á Akureyri en engin mál á Siglufirði Ein stórfelld líkamsárás sem tilkynnt var undir morgun er til rannsóknar hjá lögregluembættinu. Enginn hefur verið handtekinn vegna hennar en brotaþoli var fluttur á sjúkrahús. „Þar kom í ljós að hann var með beinbrot í andliti og var með höfuðáverka eftir slagsmál.“ „Þegar lögreglan kemur á vettvang er gerandi farinn. Niðurstaðan var sú að við vorum ekki með upplýsingar um geranda þannig að það er eitthvað sem að rannsóknardeild embættisins þarf að skoða.“ Tveir í fangageymslu vegna ölvunar á almannafæri Þá komu upp átta mál vegna ölvunar eða vímuástands og gistu tveir í fangageymslu. Í fimm tilvikum voru afskipti höfð af börnum vegna ástands. Tíu umferðarlagabrot eru skráð hjá embættinu síðastliðinn sólarhring en ekkert tilfelli kom upp þar sem grunur var um akstur undir áhrifum vímugjafa. Engin mál eru skráð hjá lögreglunni á Siglufirði þar sem bæjarhátíðin Síldarævintýrið á Siglufirði fer fram. Alls voru skráð 83 mál hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Fleiri fréttir Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent