Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar 1. ágúst 2026 10:01 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði nýverið grein sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hún reynir af veikum mætti að stilla þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok mánaðar upp þannig að hún sé úlfur í sauðagæru. Með aðildarviðræðum sé ekki bara verið að semja og fá fram upplýsingar, heldur felist í þeim önnur og alvarlegri skuldbinding. Í greininni segir Guðrún enn fremur að „forsætisráðherra hefur sagt að hún hafi rauðar línur sem hún muni ekki samþykkja að fara yfir. En hverjar eru þær? Hvar mun ríkisstjórnin ekki gefa eftir? Hvað þarf að fást fram í sjávarútvegi og landbúnaði? Hvað gerist ef Evrópusambandið hafnar kröfum Íslands? Þessu hefur ekki verið svarað.“ Við þessa framsetningu er, vægt til orða tekið, ýmislegt að athuga. Skýr markmið legið fyrir á þriðja mánuð Það er áhyggjuefni þegar formaður stjórnmálaflokks sem tekur sig alvarlega setur fram svona lagað. Annaðhvort hefur Guðrún ekki kynnt sér málin eða hún talar gegn betri vitund. Erfitt er að átta sig á hvort sé verra. Í fyrsta lagi veit Guðrún mætavel að fyrirkomulagið sem nú hefur verið framsett felur í sér tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, aðra um hvort eigi að fara í viðræður og svo hina, verði fyrri niðurstaðan jákvæð, um hvort samþykkja eigi aðildarsamning. Valið og valdið gagnvart því að fara í viðræður og hvort samþykkja eigi samning er því alltaf og einvörðungu í höndum þjóðarinnar. Lítist þjóðinni ekki á samninginn þá getur hún hafnað honum í seinni atkvæðagreiðslunni án þess að nokkur frekari aðlögun eða leyniaðild hafi átt sér stað. Í öðru, og nokkuð alvarlegra lagi, verður það að teljast nánast vítavert að formaður Sjálfstæðisflokksins viti ekki hver samningsmarkmiðin í mögulega fyrirhuguðum aðildarviðræðum séu. Þau hafa legið fyrir opinberlega síðan 18. maí 2026 í áliti meirihluta utanríkismálanefndar um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer í lok ágúst. Það nefndarálit má lesa hér. Í kjölfar þess að álitið var lagt fram átti sér stað seinni umræða um tillöguna. Guðrún tók virkan þátt í þeirri umræðu. Rauðar línur sem verður ekki farið yfir Umrædd samningsmarkmið eru rauðu línurnar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vitnaði til og Guðrún gerði að umtalsefni í greininni. Þau sýna svart á hvítu hvað samninganefndin sem verður skipuð, samþykki þjóðin að fara í viðræður, á að sækja. Þau sýna hvað Ísland ætlar ekki að gefa eftir. Þau sýna fyrir hverju ríkisstjórn Íslands, með almannahag að leiðarljósi, ætlar að berjast eins og ljón fyrir að ná í gegn. Takist ekki að semja um þessi skilyrði þannig að Ísland sé ánægt með niðurstöðuna þá mun það hafa skýr áhrif á það hvernig margir jákvæðir greiða atkvæði í seinni atkvæðagreiðslunni, meðal annars sá sem hér skrifar. Ástæða þess að Nei-sinnar, sérstaklega þeir sem starfa dags daglega í pólitík, láta eins og þessi samningsmarkmið séu ekki til er vegna þess að þau slá á þann áróður sem hópurinn beitir fyrir sér í tilraun sinni til að hræða þjóðina frá því að skoða raunverulega hvort hans hagsmunir séu hennar hagsmunir. Þau slá nefnilega á hugmyndir um fullveldismissi, að yfirráð yfir auðlindum hverfi úr landi, að engar sérlausnir verði í boði, að vinnumarkaðsmódelið okkar verði bútað í sundur, að börnunum okkar verði öllum laumað í óstofnaðan evrópskan her. Og svo framvegis. Sérstaða Íslands kjarni samningsmarkmiða Hver eru svo þessi samningsmarkmið? Þau hvíla á þeirri staðreynd að Ísland er lítið, opið hagkerfi í miðju Norður-Atlantshafi, herlaus þjóð sem byggir lífskjör sín á alþjóðaviðskiptum, stöðugleika, náttúruauðlindum og samstarfi við aðrar þjóðir. Aðild að Evrópusambandinu, eigi hún að verða að veruleika, verður að byggja á þessum forsendum og taka tillit til sérstöðu Íslands. Í gjaldmiðlamálum er samningsmarkmiðið það að Ísland geti hafið myntsamstarf og tekið upp evru eins nálægt aðild og aðstæður leyfa. Með því getum við tryggt að sem styst verði í þá augljósu kosti aðildar sem felast í stórbættum vaxtakjörum, miklu skaplegra verðlagi, aukinni samkeppni, uppbroti á fákeppni og meiri stöðugleika. Annað skýrt markmið er að aðild verður ekki samþykkt nema hún tryggi yfirráð Íslendinga yfir öllum lykilauðlindum þjóðarinnar. Ísland þarf að halda fullu forræði yfir sjávarauðlindinni, stýringu veiða og sjálfbærri nýtingu fiskistofna. Við þurfum að verja hlutdeild okkar í deilistofnum og tryggja að afrakstur auðlindarinnar haldist hér á landi. Sama á við um vatns- og orkuauðlindir. Ákvörðun um sæstreng sem myndi tengja íslenskan orkumarkað við meginlandið verður til að mynda alltaf að vera íslensk ákvörðun. Landbúnaðurinn þarf sömuleiðis sérlausnir sem taka mið af raunveruleikanum hér á landi. Framleiðsluaðstæður á Íslandi eru erfiðari en víðast hvar í Evrópu. Þess vegna þarf stuðningur að tryggja fæðuöryggi, byggð og áframhaldandi búskap, jafnvel þótt stuðningskerfið breytist. Bann við innflutningi lifandi dýra þarf líka að standa áfram til verndar íslenskum búfjárkynjum. Þá verður barist fyrir því að aðildargjöld að sambandinu skili sér til baka til samfélagsverkefna, til dæmis til að renna stoðum undir brothættar byggðir og til að fjölga atvinnutækifærum þar. Við munum líka berjast fyrir því að viðhalda þeim sérlausnum sem eru þegar til staðar í gegnum EES-samninginn, tryggja að Ísland njóti réttinda á við önnur aðildarríki frá fyrsta degi svo við höfum strax áhrif og aðkomu að ákvörðunum um málefni sem okkur varðar og standa vörð um norræna vinnumarkaðsmódelið sem er okkur svo mikilvægt. Ekki vera hrædd, heldur stolt og stór Það sem við stöndum frammi fyrir er einstakt lýðræðislegt ferli. Verið er að færa fólkinu í landinu ákvörðunarvald yfir stóru máli sem hefur verið þrætuepli í áratugi. Þegar hugsað er til þess að Ísland er eina Norðurlandið, og raunar eitt af örfáum löndum álfunnar, sem er aðili að Evrópusambandinu eða EES og hefur aldrei spurt þjóð sína um afstöðu þá verður málið enn lýðræðislega mikilvægara. Í ofanálag er um að ræða tvöfalda atkvæðagreiðslu af sama toga og forsvarsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem þá var leiddur af núverandi formanni Miðflokks, vildu að farið yrði í á kjörtímabilinu 2009–2013. Fyrirkomulag sem sömu flokkar hafna nú vegna þess að þeir treysta ekki þjóðinni til að hafa vit fyrir sjálfri sér. Ísland er stórkostlegt land og Íslendingar eru stórkostleg þjóð. Árangur okkar á síðastliðinni rúmri öld á sér fáar ef einhverjar hliðstæður. Okkur hefur tekist að færast úr torfkofum, einangrun og einsleitni yfir í að vera með einhver mestu lífsgæði sem finnast á byggðu bóli. Það hefur Ísland meðal annars gert með því að nota fullveldi sitt til alls kyns alþjóðasamvinnu. Án undantekninga hafa skref í þá átt styrkt okkur verulega frekar en veikt. Það gerðist með stofnaðildinni að NATO, tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin, aðildinni að EFTA og síðast en alls ekki síst EES-samningnum. Allar forsendur eru til staðar svo að það sama verði uppi á teningnum með aðild að Evrópusambandinu, sé skýrum skilyrðum vegna sérstöðu Íslands mætt í samningaviðræðunum. Ekki vera hrædd eins og Nei-sinnar vilja hafa ykkur, heldur stolt og stór. Það er ekkert að óttast. Valdið er og verður ykkar. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar