Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar 29. júlí 2026 14:00 Áður en gengið var frá spurningunni, sem lögð verður fyrir þjóðina, að ljúka viðræðum við ESB um hugsanlega aðild Íslands, var fallist á ábendingu frá Sjálfstæðisflokknum að leita til Feneyjarnefndarinnar um orðalag hennar. Nefndin vann sína vinnu vel og samviskusamlega og skilaði tillögu um breytingar á spurningunni sem ríkisstjórnin féllst á. Var þá talið víst að allir skildu spurninguna, jafnvel hörðustu Sjálfstæðismenn! Nefndin lagði ennfremur ríka áherslu á að því væri haldið vel á lofti í tengslum við kosningarnar að hér væri um að ræða spurningu að halda áfram viðræðum en ekki um að ganga í ESB. Tók þetta sérstaklega fram svo fólk þyrfti ekki að velkjast í nokkrum vafa. En þá bregður nýrra við. Jafnvel þó sanntrúaðir Sjálfstæðismenn skildu spurninguna loksins þá höfðu þeir engan áhuga á að vekja athygli á þessari ábendingu Feneyjarnefndarinnar – þvert á móti grauta þeir þessu nú öllu saman og kenna svo öðrum um upplýsingaóreiðu! Þrástagast jafnvel á að með því að samþykkja að halda viðræðunum áfram og vinna næstu mánuði að gerð samnings þá hafi Ísland lent í einhverskonar hakkavél með einstefnuloka í því ferli þar sem ESB muni hengja á land og þjóð allskonar skuldbindingar á samningstímanum sem ekki verði hægt að losa sig við jafnvel þó þjóðin ákveði í síðari atkvæðagreiðslunni að semja ekki. Þetta var einmitt málflutningur sem Feneyjarnefndin varaði sérstaklega við; gæta þess vel að lenda ekki í slíkum ógöngum því umsókn og það ferli væri ekki það sama og að samþykkja samning sem enginn hefur aukinheldur séð. Um þetta álit Feneyjarnefndarinnar þegja Sjálfstæðismenn þunnu hljóði í sínum málatilbúnaði og fara því þvert á álit hennar sem þeir lögðu sjálfir svo mikla áherslu á að leita til. Slíkur og þvílíkur málflutningur var ekki hátt skrifaður í minni sveit og kallaður tvískinnungur. En þrátt fyrir þetta eru sem betur fer ekki allir Sjálfstæðismenn í þessari villu. Þórdís Kolbrún Eyfjörð Gylfadóttir segir það að sjálfsögðu valkost fyrir okkur Íslendinga að vera aðili að ESB. Bætir því jafnframt við að við eigum ekki að þykjast vera of fín til að íhuga það af yfirvegun enda mikið í húfi. Það væri líka að dómi undirritaðs frétt til næsta bæjar að flokkurinn sem barist hefur í áratugi fyrir vestrænni samvinnu treysti sér ekki lengur svo mikið sem að ræða við þá sem nú eru í forystu fyrir nágrannalönd okkar í Evrópu um framtíðarstöðu Íslands í ESB. Í dag erum við nátengd þessum löndum með EES-samningnum sem hefur reynst okkur ákaflega hagfelldur og fáum Sjálfstæðismönnum dettur í hug að andmæla. Það er því í hæsta máta einkennilegt að heyra ágæta Sjálfstæðismenn taka upp orðbragð þeirra sem lengst hafa verið til vinstri hér á landi og sjá hættur í hverju horni þegar minnst er á samvinnu vestrænna ríkja til að auka öryggi landsmanna, bæta velferð og tryggja raunverulega samkeppni hér innanlands í fjármálaþjónustu og tryggingum svo eitthvað sé nefnt af því sem nú er í hershöndum innlendra einokunarfyrirtækja. Engin samkeppni eins og best sást í síðustu viku þegar Arion-banki hækkaði alla þjónustuliði sína með bros á vör enda vita þeir að hinir bankarnir munu fylgja dyggilega eftir og hækka líka. Allt í friði frá þessu varasama ESB. Þannig hefur það verið og þannig mun það verða að óbreyttu nema við segjum já næsta höfuðdag og könnum í framhaldi af því hvaða kostir bjóðast með fullri aðild að ESB. Þetta er raunverulegur valkostur eins og Þórdís Kolbrún bendir réttilega á. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar