Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 09:23 Bradley Barcola fagnar hér marki sínu á móti Norðmönnum á heimsmeistaramótinu. EPA/GREG M. COOPER Liverpool er sagt vera klárt í að stíga næsta skref og fara í viðræður við Paris Saint-Germain um kaup á franska landsliðsmanninum Bradley Barcola.
Sky Sports segir frá því að Liverpool hafi undirbúið fyrsta tilboð og muni staðfesta áhuga sinn með opinberri fyrirspurn. Liðið þarf að styrkja sig með öflugum kantmanni eftir að Mohamed Salah yfirgaf félagið og Barcola hefur verið á radar Liverpool í nokkur ár. Fréttin hjá Sky Sports.Sky Sports Þessi 23 ára leikmaður á tvö ár eftir af samningi sínum við PSG og hefur gefið til kynna að hann muni ekki skrifa undir nýjan samning vegna óánægju með lítinn spiltíma hjá frönsku Evrópumeisturunum. Tækifærið til að ganga til liðs við Liverpool er sagt höfða til leikmannsins samkvæmt frétt Sky Sports. Lykillinn að því að koma hreyfingu á samninginn verður vilji PSG til að lækka verðmiðann á manninum sem þeir keyptu fyrir um fjörutíu milljónir punda árið 2023. Sky Sports News greindi frá því í gær að PSG meti franska landsliðsmanninn á allt að 145 milljónir punda en aðrar heimildir benda nú til þess að það gæti verið um 128,5 milljónir punda. Árangur liða Andoni Iraola hjá Bournemouth og Rayo Vallecano byggðist á hraða, orku og vinnusemi kantmanna hans, þannig að Barcola gæti verið lykilpúsl í nýju púsluspili Spánverjans hjá Liverpool. Sú staðreynd að Barcola hefur unnið níu stóra titla á síðustu tveimur árum, þar á meðal tvo Meistaradeildartitla, sýnir gæðin á leikmanninum sem þeir eru að reyna að fá til Anfield. Arsenal er líka sagt hafa áhuga á að kaupa Barcola.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Enski boltinn Fleiri fréttir Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sjá meira