Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. júlí 2026 13:04 Skúli Tómas snýr aftur á Landspítalann í Fossvogi þar sem hefur verið skortur á læknum um árabil. Hann starfar á lyflækningadeild. vísir Héraðssaksóknari hefur ákveðið að kæra til Landsréttar frávísun í máli embættisins gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni. Embættið hafði þrjá daga til að ákveða með kæru og bíður nú niðurstöðu Landsréttar.
Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Embætti landlæknis svipti hann lækningaleyfi árið 2021 þegar hann hafði stöðu grunaðs í fleiri andlátum á stofnuninni. Að endingu var aðeins ákært í einu máli. Héraðsdómur Reykjaness vísaði ákæru héraðssaksóknara frá dómi á grundvelli þess að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað fyrir brot sín þegar landlæknisembættið svipti hann leyfi. Ekki væri hægt að refsa manni í tvígang fyrir sama brot. Þegar dómur fellur í héraðsdómi kemur það í hlut ríkissaksóknara að taka ákvörðun um það fyrir hönd ákæruvaldsins hvort tilefni sé til að áfrýja dómnum. Í þessu tilfelli var um úrskurð að ræða og því er það héraðssaksóknari sjálfur, sem sótti málið, sem ákveður með kæruna. Skúli Tómas hefur störf á Landspítalanum í þessari viku samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Það þótti eðlilegt með hliðsjón af niðurstöðu héraðsdóms. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Skúli Tómas settur í leyfi þegar ákæra var gefin út á hendur honum í lok mars. Hann snýr nú aftur til starfa en samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum verður staðan endurmetin ef tilefni þykir til, sem gæti orðið að lokinni meðferð Landsréttar. Skúli Tómas, sem fékk lækningaleyfi sitt aftur árið 2024, starfar við lyflækningar á Landspítalanum í Fossvogi. Á heimasíðu Landsréttar segir að dómstóllinn sé lokaður til og með 21. ágúst. Minni háttar starfsemi er þó hjá dómstólnum yfir sumarið þar sem kröfur um gæsluvarðhald og aðrir úrskurðir eru teknir til skoðunar. Einn dómari kvað upp frávísunarúrskurðinn í héraðsdómi eins og algengast er. Þrír dómarar taka almennt þátt í meðferð máls fyrir Landsrétti.
Læknamistök á HSS Dómsmál Landspítalinn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira