Hera setti Íslandsmet og Guðni Valur vann tvö kastgull Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2026 17:32 Hera Christensen setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í kringlukasti í dag. Getty/Alex Livesey Hera Christensen náði stærsta afreki dagsins á þriðja og síðasta degi 100. Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum sem fór fram í Skógarseli í Mjóddinni um helgina.
Hera Christensen varð Íslandsmeistari í kringlukasti á nýju Íslandsmeti en hún kastaði 56,76 metra og sló sitt eigið met. Gamla met Heru var kast upp á 55,95 metra síðan í ágúst í fyrra en metið náði því ekki að halda upp á eins árs afmælið sitt. Hera var að tryggja sér þriðja Íslandsmeistaratitil í röð í kringlukasti en hún vann með 46,28 metra kasti 2024 og með 51,82 metra kasti í fyrra. Guðni Valur Guðnason varð Íslandsmeistari í kúluvarpi karla eftir kast upp á 16,93 metra en hann vann líka kringlukastið með 60,63 metra kasti fyrr í dag. Þetta var ellefti Íslandsmeistaratitill Guðna í kringlukasti og sá fjórði í kúluvarpi. Hann vann einnig tvöfalt 2019, 2020 og 2022. Ármenningurinn Karl Sören Theodórsson vann stangarstökk karla með því að fara yfir 4,75 metra, Blikinn Júlía Kristín Jóhannesdóttir vann 100 metra grindarhlaup kvenna á 13,31 sekúndum og FH-ingurinn Irma Gunnarsdóttir vann þrístökk með því að stökkva 13,02 metra. Blikinn Þorleifur Einar Leifsson vann 110 metra grindarhlaup karla á 14,61 sekúndum og Fjölniskonan Christina Alba Marcus Hafliðadóttir vann 200 metra hlaup kvenna á 24,79 sekúndum. Kristófer Þorgrímsson vann 200 metra hlaup karla á 21,42 sekúndum en annar var Kolbeinn Höður Gunnarsson á 21,52 sekúndum. Kristófer náði því að hefna fyrir 100 metra hlaupið í gær þegar Kolbeinn vann það með 0,02 sekúndna mun. FH-ingurinn Íris Anna Skúladóttir vann 5000 metra hlaup kvenna, Fjölnismaðurinn Davíð Freyr Magnússon vann 5000 metra hlaup karla og liðsfélagi hans Guðjón Dunbar Diaquoi Þorsteinsson vann þrístökk karla.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Tveir nýliðar í landsliðshópnum Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Frumkvöðlar hér heima heiðraðir Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Sjá meira