Lánavöxturinn um 110 milljarðar þegar heimili sóttust í fasta óverðtryggða vexti
Á fyrri helmingi ársins 2026 nam ný lántaka heimila með veði í íbúð á föstum vöxtum yfir 150 milljörðum króna, að miklum meirihluta óverðtryggt, samhliða því að þau voru í stórum stíl að greiða upp lán á breytanlegum kjörum. Þróunin er til marks um að heimilin óttast áframhald á viðvarandi verðbólgu og háu vaxtastigi.
Tengdar fréttir
Landsbankinn með langmest undir í lánum til byggingageirans
Eftir verulegan lánavöxt á liðnu ári til byggingageirans er Landsbankinn núna með um helminginn af öllum útistandandi lánum stóru bankanna til verktakafyrirtækja. Greinendur hafa varað við því að fyrirséð er að útlánasafn bankanna til geirans eigi eftir að „súrna“ núna þegar meðalsölutími nýrra íbúða hefur aldrei mælst lengri og þrengt hefur að aðgengi að lánsfé.
Fyrirtæki farin að „fresta öllum ákvörðunum sem hægt er að fresta“
Áhyggjur af þrálátri verðbólga og háu vaxtastigi eru farin að hafa merkjanleg áhrif á fjárfestingar í mörgum atvinnugreinum, að sögn fjármálastjóra Íslandsbanka, en fyrirtækin eru að fresta öllum fjárfestingarákvörðunum sem hægt sé að fresta. Þótt íslensku bankarnir, sem eru allir með jákvæðan verðtryggingarjöfnuð, njóti til skamms tíma ávinnings af mikilli verðbólgu þá mun sú staða að lokum snúast í andhverfu sína og valda þeim útlánatapi.