Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. júlí 2026 23:37 Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og Björgvin Þór Rúnarsson, faðir drengs í U20 landsliðinu í körfubolta. Samsett Faðir drengs í unglingalandsliðinu í körfubolta segir ungmenni og fjölskyldur þeirra þurfa að leggja út hundruðum þúsunda króna „bara til þess að fá að spila með landsliðinu“. Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands segir sambandið skorta fjármagn til að styðja við afreksfólk en eitt meginmarkmið sambandsins sé að jafna aðgengi að íþróttastarfi. „
Ferðir, gisting, þátttökugjöld, búnaður, matur, frí úr vinnu og ótal klukkutímar í akstri og skipulagningu. Fyrir margar fjölskyldur nemur þessi kostnaður fjárhæðum sem gætu staðið undir útborgun á tveggja herbergja íbúð. Það er veruleiki sem fáir sjá,“ segir Björgvin Þór Rúnarsson í Facebook-færslu en hann er faðir drengs í U20 landsliðinu í körfubolta. Björgvin segir marga foreldra ósátta við stöðuna eins og hún er en ábyrgðin sé alfarið hjá stjórnvöldum. „Maður er alltaf röflandi einhvers staðar úti í horni við aðra foreldra og það eru allir jafn óánægðir með þetta og enginn þorir að segja neitt,“ segir Björgvin í Reykjavík síðdegis í gær. Foreldrar hafi jafnvel þurft að draga börnin sín úr landsliðshóp vegna útgjaldanna. Sonur hans hafi borgað 250 þúsund „bara til þess að fá að spila með landsliðinu“ það sem af er ári en í fyrra hafi þau borgað 770 þúsund krónur. „Í gegnum landsliðsferilinn hans erum við kannski búin að borga því sem nemur útborgun í lítilli íbúð.“ „Sem foreldri landsliðsmanns hef ég séð með eigin augum hvað það kostar að fá þau forréttindi að spila fyrir Íslands hönd. Og já – ég segi forréttindi, því það er heiður að klæðast íslenska búningnum. En það á ekki að kosta fjölskyldur milljónir króna,“ skrifar Björgvin. Íþróttasamböndin vilji gera betur fyrir ungmennalandsliðin en ekki sé nægilegt fjármagn fyrir því. „Þessi sambönd eru náttúrulega tæknilega gjaldþrota, þannig að það er eiginlega ekkert hægt að gera.“ Stjórnvöld þurfi að líta inn á við og átta sig á því hvað íþróttir hafa mikið forvarnargildi og hvað landsliðið sé „góð auglýsing fyrir Ísland.“ „Íslenska landsliðið fyrir mér er besta landkynning sem Ísland getur fengið út á við.“ „Ég held að við sem þjóð ættum að sameinast og reyna að byggja undir landsliðin okkar enn betri umgjörð. Hún er ágæt í dag. En það eru margir krakkar sem geta ekki tekið þátt í landsliðsverkefninu vegna þess að það eru einfaldlega ekki til peningar fyrir því inni á heimilunum.“ Segir Afrekssjóð vanfjármagnaðan „Heildarmarmiðið okkar er auðvitað að jafna aðgengi og þátttöku allra að íþróttum, sérstaklega í landsliðsþátttökunni,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segist sammála Björgvini að ekki sé tækt að keppendur sjálfir og fjölskyldur þeirra standi straum af kostnaði landsliðsstarfs yngri keppenda. Hluti af afreksstefnu ÍSÍ sé að bæta Afrekssjóð, en hann hafi verið vanfjármagnaður lengi vel, allt frá árinu 1977. Árið 2024 hafi komið „myndarleg innspýting í Afrekssjóð“ og í fjárlögum 2025 hafi verið gert ráð fyrir viðbótarfjárframlagi upp á sex hundruð milljónir króna. Það hafi verið viðbót við fyrirliggjandi fimm hundruð milljónir króna eftir úthlutunarreglum. Ákvörðunin hafi verið tekin til þess að styrkja ungmenni til landsliðsþátttöku. Landssamböndin, sem eru 34 talsins, og íþróttagreinarnar sjálfar séu í mjög ólíkri stöðu fjárhagslega. Afreksstarf sé hins vegar mjög víðtækt, “bæði þegar kemur að því að sinna þessu faglega starfi, ráða þjálfara og fagleg teymi, og svo hefur umfangið breyst mjög mikið. Til dæmis í liðaíþróttum. Það kostar okkur jafnmikið að halda úti tuttugu ára landsliði í körfubolta eða handbolta og fyrir aðrar milljónaþjóðir.“ Vantar tvö til þrjúhundruð milljónir upp á Ef ÍSÍ ætti að mæta öllum endurgreiðslubeiðnum sérsambandanna þyrfti tvö hundruð til þrjú hundruð milljónir aukalega í fjárframlög til sambandsins. „Þannig að þátttakandinn, ef hann er valinn í landslið, þurfi ekki að treysta á efnahag fjölskyldu, fjáröflun eða vera háður ólíkri fjárhagsstöðu íþróttagreina eða sérsambanda þyrftum við að bæta við þennan sjóð svona 200 til 300 milljónum.“ Willum segist binda vonir við það að ná góðu samtali við stjórnvöld um að bæta úr þessum málum enda sé jafnt aðgengi að íþróttastarfi meginmarkmið ÍSÍ. „Það er að jafna þátttöku og aðgengi að íþróttum almennt, vegna þess að við vitum það að þetta er besta forvörnin. Þegar kemur að landsliðsþátttökunni við styðjum þá við unglingana í landsliðsþátttöku og okkur finnst sjálfsagt þegar þú klæðir þig í landsliðsbúninginn þurfir þú ekki að byrja á því að hafa áhyggjur af því hvort það sé til peningur á heimilinu.“
Börn og uppeldi Íþróttir barna Alþingi Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira