„Við erum að skila ágætum frammistöðum en þær gefa okkur ekki neitt“ Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 20. júlí 2026 22:20 Lárus Orri var ekki sáttur eftir stórt tap á útivelli. ÍA Lárus Orri Sigurðsson var svekktur eftir 5-2 tap ÍA gegn Keflavík í Bestu deild karla. Hann taldi leikinn hafa verið í ágætu jafnvægi framan af en sagði tvö mörk á tveggja mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks hafa slegið Skagamenn út af laginu. „
Fram að þessum tveimur mörkum sem við fengum á okkur í fyrri hálfleik fannst mér leikurinn vera í ágætis jafnvægi. Ég var nokkuð ánægður með liðið þá. Ég sá alveg á liðinu þegar við fengum þessi tvö mörk á okkur að það kom högg á okkur.“ Keflavík skoraði fimm mörk í leiknum, þar af fjögur með skotum fyrir utan vítateig. „Við fengum á okkur fimm mörk í þessum leik. Vítið er náttúrulega víti, boltinn fer í hönd á okkar leikmanni. En hin fjögur voru öll skot fyrir utan teig.“ Hann sagði þó að ekki væri hægt að dæma alla varnarframmistöðuna út frá fyrstu sýn og vildi skoða mörkin betur. „Ég er ekki búinn að skoða öll mörkin enn þá. En í marki númer tvö eru allt of margir að hrúgast að boltanum og gefa honum frítt skot.“ Þetta var fimmta tap ÍA í röð og viðurkenndi Lárus Orri að mörkin tvö undir lok fyrri hálfleiks hefðu haft mikil áhrif á leikmennina. „Það sem er kannski verst í þessu er að maður sá alveg að það kom högg á liðið eftir þessi tvö mörk. Það er kannski skiljanlegt að einhverju leyti, en þetta er staðan sem ég var búinn að lenda ítrekað í. Við erum að skila ágætum frammistöðum en þær gefa okkur ekki neitt.“
Besta deild karla Íslenski boltinn ÍA Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Fleiri fréttir Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira